Íslenskt ævintýra app fyrir börnin Marín Manda skrifar 18. september 2013 09:30 Frumkvöðullinn Bjarni Einarsson sýnir appið í spjaldtölvunni. Fréttablaðið/vilhelm „
Ég sagði upp vinnunni minni þrátt fyrir að vera með góð laun og ákvað að gefa mig allan í þetta verkefni. Maður lifir bara einu sinni og annaðhvort eltir maður drauma sína eða gerir bara ekki neitt,“ segir Bjarni Einarsson. Hann hefur nú hannað nýtt smáforrit sem heitir Ævintýrakistan og er sérstaklega ætlað börnum og fjölskyldum þeirra. Appið samanstendur af myndskreyttum hljóðbókum með Grímsævintýrunum sem bæði henta fyrir android-síma og iPhone. Bjarni segist hafa ákveðið að endurskrifa Grimmsævintýrin eftir að hafa rætt við vini sína sem eiga börn. Í ljós kom að lítið er um íslenskt efni fyrir börn í rafrænu formi, en börn hafa sífellt meiri áhuga á spjaldtölvum. „Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að búa til mitt eigið forrit en ekki eingöngu selja annarra manna hugmyndir. Ég fékk því tólf teiknara með mér í sjálfboðavinnu og góð vinkona mín tók að sér að lesa sögurnar inn.“ Sjálfur segist Bjarni hafa flutt til Selfoss og búið í bílskúr til að fjármagna verkefnið. Á daginn kenndi hann crossfit til að geta unnið að þessu launalaust á kvöldin. „Mörg skipti vaknaði ég upp í bílskúrnum á Selfossi og hugsaði: „Hvað varstu að gera drengur, hvernig datt þér þetta í hug?““ Draumurinn varð að veruleika í febrúar þegar sex bækur komu út á íslensku og þrjár á ensku, en stefnan er að búa til meira af fallegu barnaefni í framtíðinni. „Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að þessi rafræni miðill er framtíðin fyrir okkur öll. Þú getur nánast stjórnað heilu heimsveldi úr þessum spjaldtölvum í dag.“ Hægt er að nálgast hljóðbækurnar hér
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira