Við viljum minnka notkun svefnlyfja Ása Ottesen skrifar 10. september 2013 11:00 Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og doktorsnemi, er einn af stofnendum vefsíðunnar Betri svefn. fréttablaðið/stefán „
Rannsóknir sýna að svona „fjarmeðferð“ getur skilað jafnmiklum árangri og meðferð sem fer fram hjá meðferðaraðila. Með þessu móti er hins vegar hægt að hjálpa miklu fleirum, ná til allra landshluta og bjóða upp á þessa þjónustu á mikið lægra verði en áður hefur þekkst,“ segir Erla Björnsdóttir, sálfræðingur með sérhæfingu í HAMS-S og doktorsnemi í svefnrannsóknum við Læknadeild Háskóla Íslands, sem stofnaði nýverið fyrirtækið Betri svefn í samstarfi við læknana Steindór Odd Ellertsson og Gunnar Jóhannsson. Betri svefn tók þátt í Gullegginu 2013 sem er frumkvöðlakeppni íslenskra háskólanemenda og nýútskrifaðra, fyrr á árinu og var meðal tíu efstu og fékk sérstök útflutningsverðlaun Íslandsstofu. Aðspurð segir Erla að hugmyndin að stofnun Betri svefns hafi sprottið út frá þeim vandamálum sem blasi við okkur í nútímasamfélagi. „Á hverjum tíma glíma 10-15% fullorðinna við langvarandi svefnleysi. Samhliða því eykst notkun svefnlyfja og á Íslandi hefur orðið gríðarleg aukning síðastliðna áratugi. Sálfræðimeðferð er mjög dýr og það eru fáir sálfræðingar sem bjóða upp á sérhæfða þjónustu fyrir fólk með svefnvandamál,“ segir Erla. Betri svefn, býður fólki með svefnvandamál upp á sambærilega meðferð og það fengi á stofu hjá sálfræðingi. „Með þessum hætti gefum við fólki tækifæri til að hafa samskipti við sinn sálfræðing heima í stofu. Á síðunni eru fyrirlestrar, persónuleg ráðgjöf og spjallborð þar sem einstaklingar geta rætt saman um vandamál sín,“ segir Erla um síðuna sem hefur verið starfrækt síðan í júlí. Rannsóknir í Bretlandi hafa sýnt að hugræn atferlismeðferð hjá fagaðilum á internetinu, skilar jafn góðum árangri og meðferð á stofu hjá sálfræðingi. „Verkefnið hefur svo sannarlega undið upp á sig og nú þegar er byrjað að vinna að því að koma meðferðinni á laggirnar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Við sjáum fyrir okkur að þessi lausn geti minnkað notkun svefnlyfja til muna í framtíðinni,“ segir Erla að lokum.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira