Bókasafnsdagurinn er í dag 9. september 2013 10:00 Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir segir bókasöfn landsins kappkosta að veita sem besta þjónustu og nýta tækninýjungar.
Íslensk bókasöfn halda upp á bókasafns-daginn í dag í tengslum við Alþjóðadag læsis. Þetta er í þriðja sinn sem dagurinn er haldinn og í ár er lögð áhersla á mikilvægi og margbreytileika íslenskra bókasafna. "Á Íslandi eru nú um 300 opinber bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar. Starfsemi þeirra er afar fjölbreytt og þau þjóna ólíkum notendahópum,“ segir Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður. „Stærð safnanna er afar misjöfn, sum eru með nokkur hundruð rit, en önnur ráða yfir miklu magni bóka og ýmis konar gagna. Sum söfnin þjóna afmörkuðum hópum eins og Hljóðbókasafn Íslands, en önnur þjóna heilu byggðarlögunum, eins og Amtsbókasafnið á Akureyri sem þjónar íbúum bæjarins og raunar landinu öllu með ýmsum hætti.“ Ingibjörg segir mikinn metnað meðal starfsmanna bókasafna og alltaf sé verið að leita leiða til að bæta þjónustuna og nýta nýjustu tækni. „Meðal starfsfólks bókasafnanna hefur ævinlega verið lögð mikil áhersla á samstarf og að finna leiðir til að veita betri þjónustu. Og þrátt fyrir fjölbreytileikann, mismunandi starfsemi og ólíka notendahópa hefur tekist að þróa merkilegar vefþjónustur sem eru mikið notaðar. Þekktust þeirra er líklega Gegnir sem er sameiginlegt bókasafnskerfi fyrir allt landið og rekið af Landskerfi bókasafna. Þar er meðal annars hægt að sjá öll þau gögn sem bókasöfnin eiga og hvort þau séu til útláns. Annað þekkt verkefni er Landsaðgangurinn eða hvar.is, þar sem allir landsmenn hafa aðgang að rúmlega 20.000 erlendum vísinda- og fræðatímaritum, auk gagnasafna og alfræðirita á borð við Encyclopedia Britannica. Vel yfir milljón greinar voru sóttar í þetta efni á síðasta ári.“ Í tilefni dagsins mun starfsfólk bókasafna velja uppáhalds handbókina sína. Ingibjörg segir að birtur verði listi yfir vinsælustu titlana. „Við hvetjum fólk til að fylgjast með því og öðru því sem bókasöfnin hafa upp á að bjóða, en allar upplýsingar um starfsemi þeirra er að finna á bokasafn.is.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira