Fyndið ef barnið fæðist meðan ég er í beinni Ása Ottesen skrifar 6. september 2013 10:00 Poppsöngvarinn Friðrik Dór Jónsson mun stýra upphafsþætti Stöðvar 3 sem fer í loftið kl 21.00 á laugardaginn. fréttablaðið/ernir „
Ég vona svo sannarlega að þetta verði ekki vandræðalegt en það getur vel verið að svo fari,“ segir söngvarinn og lagahöfundurinn Friðrik Dór Jónsson, sem stjórnar opnunarþætti nýrrar sjónvarpsstöðvar á morgun. Nýja sjónvarpsstöðin nefnist Stöð 3 og fer í loftið klukkan 21 annað kvöld. Á stöðinni verður boðið upp á innlent og erlent sjónvarpsefni fyrir alla aldurshópa. „Það var haft samband við mig og ég beðinn um að stjórna opnunarþætti stöðvarinnar. Þetta er algjör frumraun fyrir mig þar sem ég hef ekki stjórnað sjónvarpsþætti áður. Ég fiktaði aðeins við þáttagerð þegar ég var í menntaskóla, þá vorum við vinirnir að taka upp grínsketsa. Síðan þá hef ég ekkert komið nálægt þáttagerð. Mér finnst þetta vera ágætis tækifæri fyrir mig og ég ætla bara að hafa gaman af þessu,“ segir hann. Spurður nánar út í þáttinn segir Friðrik að þetta verði í megindráttum spjallþáttur þar sem hann tekur mann og annan tali. „Ég mun spjalla við gesti og gangandi og kynna dagskrá stöðvarinnar. Það verða einnig tónlistaratriði og fleira skemmtilegt. Þetta verður fjörugur þáttur og ég ætla að vera mjög hress,“ segir Friðrik og hlær. Friðrik Dór slær ekki slöku við þessa dagana en hann syngur lagið Glaðasti hundur í heimi, sem situr í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2, stundar nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og á von á sínu fyrsta barni eftir rúmlega viku. „Föðurhlutverkið leggst mjög vel í mig. Það er allt klárt fyrir komu barnsins. Ég hef litlar áhyggjur af því að barnið fæðist á meðan ég er í beinni útsendingu, en ef það skyldi gerast þá væri það bara frekar fyndið,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira