Margrét Erla: Ofsalega þakklát þessu fólki fyrir stuðninginn Sara McMahon skrifar 4. september 2013 09:00 Margrét Erla Maack og félagar hennar í Sirkus Íslands eru þakklát fyrir stuðninginn. Fréttablaðið/arnþór Birkisson „
Við erum öll í smá spennufalli og vitum ekkert hvað við eigum að tala um við vini okkar núna þegar söfnunin er yfirstaðin,“ segir fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack. Hún og félagar hennar í Sirkus Íslands fengu þá hugmynd í sumar að safna fyrir sirkustjaldi og hófu því landssöfnun á vefnum Karolinafund. Söfnuninni lauk á miðnætti mánudags og hafði hópnum þá tekist að safna sex og hálfri milljónum króna og því verður draumurinn um sirkustjaldið brátt að veruleika. Margrét Erla segir hópinn hafa safnast saman heima hjá sirkusstjóra Sirkus Íslands, Lee Nelson, til að fylgjast með lokaspretti söfnunarinnar. „Við vorum öll í sínu horni þangað til við áttuðum okkur á því að þetta gæti í raun tekist og þá söfnuðumst við heima hjá Lee. Dóttir hans var sofandi þannig að fagnaðarlætin voru mjög lágvær til að vekja hana ekki.“ Um sjöhundruð manns lögðu hópnum lið með því að kaupa miða á sýningar Sirkus Íslands næsta sumar. „Þetta var að lang mestu leyti einstaklingar, sumir keyptu einn miða og aðrir nokkra. Við erum ofsalega þakklát þessu fólki fyrir stuðninginn,“ segir Margrét Erla. Aðspurð segir hún að nú hefjist leitin að hinu fullkomna sirkustjaldi. „Það er ýmislegt sem þarf að huga að: eigum við að kaupa 200 manna tjald eða tjald sem rúmar 300 manns. Eigum við að kaupa tilbúið tjald eða láta búa til tjald sérstaklega fyrir okkur. Þetta eru hlutir sem við þurfum að leggjast yfir núna,“ segir hún að lokum.
Mest lesið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Krummi kveður pabba sinn Lífið Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira