Boðið upp á sérstaka sólarlandaferð fyrir hinsegin fólk til Kanarí í vetur Hanna Ólafsdóttir skrifar 30. ágúst 2013 07:00 Ragnar Kristinsson og Sigurður Karlsson verða fararstjórar í hinsegin ferðinni. Daníel „
Þetta er í fyrsta skipti sem svona ferð er farin á vegum íslenskrar ferðaskrifstofu og þetta leggst rosalega vel í okkur,“ segir Ragnar Kristinsson, sem verður fararstjóri ásamt manni sínum, Sigurði Karlssyni, í svokallaðri hinsegin ferð á vegum Úrvals Útsýnar til Kanaríeyja í desember næstkomandi. Ferðin var auglýst í kringum Hinsegin daga og segir Ragnar að viðbrögðin hafi verið góð. „Það hafa líka mörg gagnkynhneigð pör sýnt ferðinni áhuga og vilja koma með. Þetta er auðvitað hugsað fyrir samkynhneigða, en þú mátt alveg vera svona aðeins hinsegin til að koma með. Það þarf enginn að leggja fram vottorð um að hann sé „gay“,“ segir Ragnar og hlær. Ragnar og Sigurður eru öllum hnútum kunnugir á Kanarí eftir að hafa ferðast þangað margsinnis. Hann segir fjölmargt í boði þar fyrir hinsegin fólk og að þar mæti enginn fordómum. „Það kippir sér til dæmis enginn upp við að sjá tvo karla eða tvær konur leiðast. Svo eru sérstakar „gay“ strendur og ýmislegt fleira í boði.“ Ragnar segir að ferðin sé bæði hugsuð fyrir pör og þá sem eru einir á ferð. Enginn þurfi að láta sér leiðast þar sem ýmislegt verði gert til að hrista hópinn saman. „Þetta getur verið góð leið til þess að kynnast öðru fólki og skemmta sér í leiðinni,“ segir Ragnar að lokum.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira