Sjö sjálfsvíg innan veggja fangelsa síðustu tuttugu ár Sunna Valgerðardóttir skrifar 9. apríl 2013 12:00 Langflest sjálfsvíg áttu sér stað í fjölmennasta fangelsinu.
fangelsismál Sjö fangar hafa framið sjálfsvíg innan veggja íslenskra fangelsa á síðustu tuttugu árum. Um er að ræða fanga á Litla-Hrauni og fangelsinu í Kópavogi. Þrír fangar hafa látist á sama tímabili af öðrum orsökum og gerir þetta því tíu andlát í allt. Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun frömdu þrír fangar sjálfsvíg á Litla-Hrauni árið 1998, en tölurnar hafa hvorki orðið það háar fyrr né síðar. Langflest atvikin hafa átt sér stað þar, enda langfjölmennasta fangelsi landsins. Íslensk fangelsismála- og heilbrigðisyfirvöld hafa lengi kallað eftir sértæku úrræði fyrir geðsjúka fanga sem þó hafa verið metnir sakhæfir. Síðastliðið fimmtudagskvöld svipti andlega veikur fangi á Litla-Hrauni sig lífi í klefa sínum, Þorvarður Davíð Ólafsson, sem var dæmdur til fjórtán ára fangelsisvistar árið 2011 fyrir tilraun til manndráps. Þorvarður veitti föður sínum, Ólafi Þórðarsyni, áverka sem drógu hann til dauða í nóvember 2010. Ólafur komst aldrei til meðvitundar eftir árásina og lést tæpu ári síðar á Grensásdeild. Greint var frá því í Fréttablaðinu í nóvember að Þorvarður hefði verið nauðungarvistaður á Kleppi til að veita honum meðferð og komu þar fram gagnrýnisraddir frá yfirvöldum vegna þeirra vankanta á kerfinu að geta ekki sinnt veikum föngum nægilega vel. Maður sem dvaldi á Litla-Hrauni með Þorvarði um tíma segir alla hafa gert sér grein fyrir því að hann hafi verið alvarlega veikur. Fangarnir hafi tekið að sér eins konar sálgæslu fyrir Þorvarð, enda fá önnur úrræði í boði. Maðurinn gagnrýnir kerfið harðlega og segir ljóst í hvað stefndi í langan tíma, en lítið hafi verið að gert. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir brýnt að yfirvöld bregðist við þessum vanda sem yfirvöld standi frammi fyrir vegna sakhæfra, veikra fanga. Ýmis úrræði séu á teikniborðinu, en vonast sé til að fangelsið á Hólmsheiði muni koma til móts við skort á rými og þar með verði auðveldara að kljást við vandamál einstakra fanga. „Þetta er hugsun sem er á vinnsluborðinu, enda augljóst að svo þarf að vera,“ segir Ögmundur. Á seinni hluta síðasta árs voru á bilinu fjórir til fimm fangar á Litla-Hrauni sem voru í raun of veikir á geði til að vera innan veggja fangelsisins. Greint var frá því í Fréttablaðinu í október. Þar sagði Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, að annaðhvort þyrfti sérálmu í fangelsi eða sérstaka deild á vegum heilbrigðisyfirvalda með fimm til tíu plássum, öryggisgæslu og sérhæfðari meðferð. Þá séu lyfjagjafir sérlega flóknar þar sem ekki sé hægt að neyða lyf ofan í einstaklinga án þess að svipta þá sjálfræði. „Þetta er eitthvað sem þarf að berjast fyrir,“ sagði hann.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira