Alþingi bannar háa vexti á smálánum Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 19. mars 2013 07:00 Mörgum hefur reynst það þrautin þyngri að halda jafnvægi launa og lánaafborgana í réttu hlutfalli. Nú hefur Alþingi sett þak á kostnað við vexti og innheimtu af lánum.fréttablaðið/valli
Samanlagður kostnaður lánþega vegna vaxta og innheimtu af lánum má aldrei verða hærri en 50 prósent af lánsfjárhæðinni, samkvæmt lögum um neytendalán sem Alþingi samþykkti samhljóða í gær. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, segir þetta koma í veg fyrir allt of háan kostnað sem víða hafi viðgengist. „Hér hefur viðgengist á markaðnum lánastarfsemi sem hefur falið í sér margra hundraða prósenta vexti, og algjörlega fáránlegan kostnað. Þar ber hæst svokölluð smálánafyrirtæki, en líka ýmis önnur skemmri lánsform sem hafa verið með ótrúlega háa vaxtaprósentu." Helgi segir það alltof lengi hafa viðgengist að fólki hafi, við lántöku, verið sýndir útreikningar sem miði afborganir við verðbólgumarkmið Seðlabankans eða jafnvel 0 prósenta verðbólgu. Það verður ólöglegt samkvæmt frumvarpinu, miðað verður við raunverulega verðbólgu og meðaltal síðustu tíu ára.Krafa um upplýsingar Frumvarpið eykur einnig aðhald með lánveitingum með kröfum um lánshæfis- og greiðslumat þegar um hærri fjárhæðir er að ræða. Helgi óttast ekki að það takmarki aðgang að lánsfjármagni. „Samþykkt frumvarpsins á ekki að breyta í veigamiklum atriðum aðgangi fólks að lánsfé, en fyrst og fremst tryggja að vandað sé til veitingarinnar og að neytendur séu vel upplýstir um það sem þeir eru að gera." Örn Arnarson, sérfræðingur hjá Samtökum fjármálafyrirtækja, segir að lögin þýði meiri umsýslu þegar kemur að smærri lánafyrirgreiðslu. Eðlilega haldist hærri kostnaður í hendur við meiri umsýslu. „Það er búið að sníða stóru agnúana af frumvarpinu við vinnslu þess. Við erum sammála markmiði laganna um að auka neytendavernd. Hins vegar leggur þetta frumvarp nýjar kvaðir á fjármálafyrirtæki, ekki síst viðskiptamenn. Minniháttar fjármálafyrirgreiðsla, sem hingað til hefur getað gengið hratt fyrir sig, verður þyngri í vöfum."Tekið á smálánum Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, lagði frumvarpið fram. Hann segir það bæta réttarstöðu lánveitenda umtalsvert og fela í sér breytingar á neytendatilskipun. „Síðast en ekki síst tekur það á smálánunum og setur þak á það hvað hægt er að setja háa vexti." Útlán – samtök fjárlánafyrirtækja án umsýslu, eða smálánafyrirtækjanna – sendi umsögn um frumvarpið til efnahags- og viðskiptanefndar. Þar sagði að í Evróputilskipuninni sem lögin innleiða sé hvergi kveðið á um hámarksvexti neytendalána og því sé óheimilt að setja slíkt í lög hér. „Það er mat Útlána að verði sett inn ákvæði í lög um neytendalán sem kveður á um 50% hámark á árlega hlutfallstölu kostnaðar verði það til þess að smálánafyrirtækin leggist af þar sem starfsemin verður ekki lengur arðbær." Þá sagði í umsögn smálánafyrirtækisins Múla að slíkt hámark gæti leitt til þess að „ómögulegt verði að veita neytendum þessa þjónustu". Steingrímur segir að ef smálánafyrirtækin finni sér ekki markaðsstöðu innan laganna verði svo að vera. „Það er náttúrulega algjörlega ljóst að menn geta ekki stundað hvaða okurlánastarfsemi sem er, eftir setningu þessara laga. Það er eindreginn vilji löggjafans að hafa það þannig." Ekki náðist í Hauk Örn Birgisson, talsmann Útlána, við vinnslu fréttarinnar.Lög um fjármálalán Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir lögin skref í rétta átt en þó sé ekki nóg að gert. „Ástæða þess að Framsóknarflokkurinn studdi ekki frumvarpið, en lagðist ekki gegn því, er sú að við teljum að ekki sé verið að gæta hagsmuna neytenda nægjanlega þegar kemur að fasteignalánum. Það vantar almenna löggjöf um fasteignalán og það er ekki verið að vernda neytendur nægjanlega þegar kemur að lántöku vegna fasteignakaupa." Steingrímur hefur skipað nefnd til að vinna að rammalagasetningu um fasteignaveðlán til íbúðakaupa. Það næst þó ekki í gegn á þessu þingi.
Mest lesið Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig Innlent „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ Innlent Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Erlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi Innlent „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Innlent Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Erlent Hnífstunga á Austurvelli Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Fleiri fréttir Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Sjá meira