„Það er afar ánægjulegt að geta boðið fólki að nálgast stóran hluta af listaverkum í eigu Listasafns Reykjavíkur á vefnum. Listaverkin hafa með þessu verið færð út fyrir veggi safnsins og til almennings. Vefsíðan býður upp á mikla möguleika til að fræðast og njóta myndlistar og getur jafnframt verið áhrifamikið tæki í kennslu,“ segir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.

Verkefnið hefur verið í þróun í fjögur ár og liggur mikil skráningar-og þróunarvinna að baki því samkvæmt fréttatilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur.
Vefsíðan er að hluta til unnin í samstarfi við DCA (stafræn endurgerð á samtímalist) sem er verkefni á vegum Evrópusambandsins en það miðar að því að gera menningararf Evrópu aðgengilegan á vefnum Europeana.eu.
Listasafn Reykjavíkur er stærsta listasafn landsins en safneignin telur alls um sautján þúsund verk og samanstendur af almennri listaverkaeign eftir fjölda innlendra og erlendra listamanna, Errósafni, Kjarvalssafni og Ásmundarsafni. Þessi söfn hafa ýmist orðið til fyrir stórmannlegar gjafir listamanna og einstaklinga eða kaup á listaverkum.
Öll verk eftir íslenska listamenn eru nú til sýnis á nýju vefsíðunni nema hluti af teikningum í eigu safnsins.