Bleikur er liturinn í dag Marín Manda skrifar 11. október 2013 12:45 Eiríksína í bleika eldhúsinu sínu.
Bleikur er litur alheimskærleika. Liturinn er jafnan notaður til að tákna fegurð, vernd og friðsæld. Nú er bleikur október genginn í garð. Bleika slaufan er til sölu og bleik uppboð eru í gangi á hverjum degi. Lífið ákvað að hylla bleika litinn því svo margt í kringum okkur tengir okkur við bleikt, hvort sem það eru bílar, heimili, föt, hár, varalitir eða jafnvel kettir.Bleikt Eldhús Eiríksína Ásgrímsdóttir, bókmenntafræðingur og bóhem. "Ég fékk poka af slæðum þegar tengdamamma lést og ákvað að gera listaverk úr slæðunum. Það var því eiginlega tengdamamma mín sem réði litnum á eldhúsinu.“Bleikt Hús Hafdís Huld Þrastardóttir söngkona. „Húsið var bleikt þegar við keyptum það. Við Alisdair ákváðum að halda litnum, enda er alltaf talað um húsið okkar sem bleika húsið í dalnum.“Bleikur sendibíll Sigurþór Sigurþórsson verktaki. „Ég ákvað að nota bílinn í gott málefni. Sissarnir ehf. ætla því að gefa 500 kr. af hverjum seldum klukkutíma til Bleiku slaufunnar.“ Hægt er að finna þjónustuna undir Bleiki bíllinn á Facebook.Mynd/Rúnar GunnarssonBleikur köttur Birta er eini kötturinn á landinu sem er Rauða kross-kisa en barnabókin Birta brött og bleik fjallar um kisuna Birtu.Bleikt dress Íris Björk ljósmyndari. „Fyrir utan svart og hvítt fara sterkir og bjartir litir mér best. Bleikur er skemmtilegur litur. Skyrtuna fékk ég í Spúútnik á Laugarveginum og pilsið í Rokit Vintage í London.“Bleikt hár Auður Eir Sigurðardóttir, á málabraut í Borgarholtsskóla. „Ég fór á stofu og var áður með blátt hár en fannst bleiki liturinn svo fallegur að ég ákvað að prófa. Hann lífgaði mikið upp á útlit mitt.“Bleik málverk Sara og Svanhildur Vilbergsdætur listakonur, duosisters.com. „Það er einhver tíðni í bleika litnum sem gerir sjóntaugarnar í okkur svo glaðar og kátar. Ef við mættum ráða væru Mexíkó-ættaðir litir á húsum og híbýlum hérlendis.“Bleika Gugga Guðbjörg Oddný Jónasdóttir stjórnmálafræðingur. „Ég tel að hrifningu mína á bleika litnum megi rekja til þess að liturinn er hressandi gleðilitur og litur kvenleikans. Ég er litblind en bleika liti sé ég hins vegar alltaf.“Bleik herraskyrta Garðar Gunnlaugsson fótboltamaður. „Mér finnst bleikur vera æðislegur litur, ég á meira að segja bleikar buxur. Samkvæmt einhverjum fræðingum táknar bleiki liturinn samúð, umönnun og ást.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira