Lífið

Djammaði í Mexíkó

Nicole Richie hélt upp á 32 ára afmælið sitt í Mexíkó þar sem hún bauð sex vinkonum sínum að fagna með sér.
Nicole Richie hélt upp á 32 ára afmælið sitt í Mexíkó þar sem hún bauð sex vinkonum sínum að fagna með sér. NORDICPHOTOS/GETTY
Samkvæmisljónið, fatahönnuðurinn og leikkonan Nicole Richie, hélt upp á 32 ára afmælið sitt í Mexíkó fyrir fáeinum dögum. Richie, sem er tveggja barna móðir, leigði einkaþotu fyrir sig og sex nánar vinkonur sínar.

Þær gistu á lúxushóteli í bænum Cabo San Lucas, sem er bær við suðurströnd Mexíkó. Vinkonurnar skemmtu sér konunglega þar sem þær sóluðu sig á ströndinni og drukku kokteila.

Á afmæliskvöldinu sjálfu klæddu þær sig upp í samsvarandi sundboli með blómamynstri. Richie er gift Joel Madden, en hann er söngvari hljómsveitarinnar, Good Charlotte.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.