Yfirgangur í meðeigendum mínum var slíkur að á mér var brotið Ellý Ármanns skrifar 28. ágúst 2013 10:00 Myndir/einkasöfn
Bryndís Gyða Michelsen, Kristrún Ösp Barkardóttir og Kidda Svarfdal snéru bökum saman fyrir ári og opnuðu nýjan vef þar sem þær skrifuðu allt á milli himins og jarðar. Þá helst um barneignir, förðun, tísku, slúðrið og persónulegar hugleiðingar. Í gær sendi Kristrún Ösp frá sér tilkynningu þar sem hún þakkar fyrir samstarfið þar sem hún segist ekki kæra sig um yfirgang meðeigenda sinna á Hún.is. Kristrún kýs að tjá sig ekki frekar um málið.Kristrún Ösp er hætt á Hún.is.Mynd/einkasafnTilkynning Kristrúnar sem hún birti á Facebook síðunni sinni í gær: „Ég hef sagt skilið við Hún.is en það kom upp í síðustu viku. Minn hlutur verður seldur þegar samkomulag hefur verið komið á hreint. Ég vil þakka öllum þeim sem lásu skrif mín og fylgdust með því sem ég var að gera á vefnum. Ég hef lært mikið á þessum tíma frá því að við stofnuðum Hún.is og mun það vonandi nýtast mér vel. Ég hef öðlast meiri skilning á viðskiptum en velgengni stígur fólki oft til höfuðs. Ég tel það ekki þess virði að standa frammi fyrir slíkum yfirgangi og græðgi, fyrir lítinn vef eins og Hún.is. Það er ekki líklegt til árangurs þegar viðskiptafélagar vilja frekar takast á en ná samstöðu um góðan rekstur og velgengni. Yfirgangur í meðeigendum mínum var slíkur að á mér var brotið hluthafasamkomulag með því að loka ritstjórnaraðgang mínum á Hún.is, mínum eigin vef, vegna fráleitra hugmynda þeirra um að ég gæfi eftir af eignahlut mínum, þeim til góða, samkvæmt þeirra einhliða mati, án þess að um slíkt væri samið. Réttsýni og heiðarleiki eru mikilvæg í viðskiptum og lykill að velgengni í framtíðinni; það er ég handviss um. Þrátt fyrir allt þakka ég fyrir samstarfið, Gísli Kr, Bryndís Gyða og Kidda Svarfdal. Ég vildi að sjálfsögðu láta ykkur vita með gang mála því ég veit að margir hér hafa fylgst vel með mér á síðunni og þakka fyrir það. Ég hlakka til að takast á við ný og spennandi verkefni."Kidda Svarfdal og Bryndís Gyða Michelsen.Hefur gengið á ýmsu „Það hefur gengið á ýmsu síðan við opnuðum vefinn og við þurft að takast á við marga krefjandi hluti. Samstarfið gekk því miður ekki upp en við óskum Kristrúnu alls hins besta og þökkum henni fyrir samstarfið," sagði Kidda spurð um ákvörðun Kristrúnar að hætta á Hún.is.Hún.is - skjáskot.Fagna í september „Við fögnum í september ársafmæli síðunnar og verður afmælismánuðurinn fullur af skemmtilegum uppákomum og við erum orðnar mjög spenntar yfir því," sagði Kidda jafnframt.Hún.is
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira