Kóngabarn færir björg í bú Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 13. júní 2013 07:00 Hertogaynjan Kate Middleton á von á barni og það eru fleiri spenntir en móðirin verðandi.
Breska þjóðin bíður í ofvæni eftir fæðingu arftaka krúnunnar en Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, á að eiga í næsta mánuði. Bresk stjórnvöld binda vonir við að hin konunglega fæðing komi til með að hafa jákvæð áhrif á efnahagskerfi landsins. Stórir viðburðir og gleðileg tilefni, líkt og þetta, eru gjarnan neytendavænir, sérstaklega þau sem varða konungsfjölskylduna. Þjóðarstolt Breta eykst og með því sala á breskum vörum, til að mynda á tei, smákökum og leirtaui með myndum af konungsfjölskyldunni. Sú var raunin þegar Vilhjálmur og Kate giftu sig í apríl á síðasta ári og síðan árið eftir þegar þjóðin fagnaði 60 ára krýningarafmæli Elísabetar drottningar. Í kjölfarið fylgdu Ólympíuleikarnir með tilheyrandi sölu á ýmsum varningi og er áætlað að þeir hafi fært þjóðarbúinu 2,5 milljarða punda. Fæðing barnsins er næsti stóri viðburður. Á síðasta ársfjórðungi var hagvöxtur aðeins 0,3 prósent í Bretlandi og þar í landi er því mikil þörf á uppsveiflu. „Á krepputímum leitar almenningur eftir einhverju til þess að gleðja sig og hefur áhuginn á konungsfjölskyldunni sjaldan verið meiri,“ segir Pauline Maclaran, breskur markaðsfræðingur. Því eru fyrir hendi góðir möguleikar á efnahagslegum ávinningi af fæðingu arftakans.
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Fleiri fréttir Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Sjá meira