"Það er sælla að gefa en þiggja!" 23. mars 2013 11:44
Jón Gnarr minnir á að ekki einu sinni Ísland sé eyland. Borgarstjórinn í Reykjavík segir að Íslendingar hafi skyldum að gegna við bræður sína og systur um allan heim. Jón tjáir sig á Fésbókarsíðu sinni í dag vegna leiðara Ólafs Stephensen, ritstjóra Fréttablaðsins. Í leiðaranum gagnrýnir Ólafur Vigdísi Hauksdóttur, þingmann Framsóknarflokksins, vegna ákvörðunnar hennar að greiða atkvæði gegn þróunaraðstoð Íslendinga. „Ætli Vigdís Hauksdóttir hafi komið á spítala í Malaví, sem er eitt af þróunarsamvinnuríkjum Íslands? Þar háttar sums staðar þannig til að verðandi mæður sitja á jörðinni í steikjandi sólinni og hitanum á meðan þær bíða eftir mæðraskoðun. Spítalalóðin er full af ættingjum sjúklinga sem elda ofan í ástvini sína á hlóðum og sinna ýmsum öðrum þörfum þeirra af því að spítalinn hefur hvorki mannskap né peninga í það. Alnæmissjúklingar liggja á gólfinu af því að það eru ekki til nógu mörg sjúkrarúm. Kona af geðdeildinni hleypur allsnakin fram hjá, öskrandi formælingar," skrifar Ólafur. Hann minnir á að þótt ástandið gæti verið betra á Landspítalanum sé það býsna fjarri þeiri neyð sem sé daglegt brauð á sjúkrastofnunum í þróunarheiminum. Jón Gnarr tekur undir með ritstjóranum: „Enginn er eyland, ekki einu sinni Ísland. Við erum einn heimur og við höfum skyldur við bræður okkar og systur um allan heim. Það er sælla að gefa en þiggja!"Leiðara Ólafs má lesa hér.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira