Ronaldo með sigurmark Real úr víti á 96. mínútu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2013 19:15 Cristiano Ronaldo fagnar í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Cristiano Ronaldo bjargaði andlitinu fyrir Real Madrid í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið á móti botnliði Elche í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Ronaldo skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri. Cristiano Ronaldo kom Real Madrid í 1-0 á 51. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu og það stefndi allt í nauman sigur en hlutirnir fóru hinsvegar að gerast í uppbótartímanum. Ganamaðurinn Richmond Boakye jafnaði leikinn á 91. mínútu en þessi lánsmaður frá Juventus hafði komið inn á sem varamaður. Það stefndi því allt í jafntefli þegar Pepe fékk vítaspyrnu á 96. mínútu og Ronaldo steig fram og skoraði af öryggi. Real Madrid er með sextán stig eða tveimur stigum á eftir Barcelona og Atlético Madrid sem hafa bæði fullt hús eftir sex umferðir. Elche er áfram á botni deildarinnar en leikmenn og þjálfarar liðsins voru mjög ósáttir með dómarinn í lokin. Kólumbíumaðurinn Carlos Alberto Sánchez var meðal annars algjörlega snælduvitlaus og var í framhaldinu rekinn í sturtu. Cristiano Ronaldo er komin með sex mörk og er marki á eftir þeim Lionel Messi og Diego Costa sem eru markahæstir með sjö mörk.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Sjá meira