Innlent

Orð Páls Magnússonar vekja undrun

María Lilja Þrastardóttir skrifar
Útvarpsstjóri virtist boða stefnubreytingu Ríkisútvarpsins í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun og hafa orð Páls Magnússonar vakið nokkra athygli í dag. Sprottið hafa upp umræður um hvort boðuð stefna Páls samræmist gildandi lagaákvæðum um Ríkisútvarpið.

„Það má ekki hafa skírskotunina of þrönga, þetta heitir almannaþjónustuútvarp, þetta er ekki fámannaþjónustuútvarp og út á það gengur skilgreiningin á þessari starfsemi alls staðar í kringum okkur, á norðurlöndunum, Bretlandi og alls staðar sem við tökum okkur til fyrirmyndar, að það verður að vera almenn skírskotun í dagskrárgerð, en það má ekki breyta þessu í einhverja sérviskulega, þrönga dagskrá sem hefur ekki almenna skírskotun, þá er alveg eins gott að loka þessu, þá hefur þetta enga þýðingu,“ sagði Páll í dag.

Lögin um Ríkisútvarpið eru undirorpin túlkun en þó er skýrt kveðið á, í ítarlegri 3ju grein þeirra að Ríkisútvarpinu beri skilda til þess að bjóða uppá fjölbreytt og vandað menningarefni og fjalla um ólík svið menningar, lista og íþrótta á Íslandi. Jafnframt er kveðið á um tryggt sé að landsmönnum sé veitt innsýn í alþjóðamál, mismunandi menningarheima og ólík sjónarmið.

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi mennta og menningarmálaráðherra ein þeirra sem velt hefur fyrir sér orðum Páls. „Þetta vekur upp spurningar um hvernig við lítum á hlutverkið því eins og það er skilgreint í lögum þá erum við að setja mjög fjölbreyttar kröfur á Ríkisútvarpið og ætlumst til að það gegni ákveðnu hlutverki. Ég held að það skipti mjög miklu að stjórn og stjórnendur RÚV velti því fyrir sér hvernig þau framfylgi því hlutverki, sem er skilgreint í lögum,“ segir Katrín.

Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður stjórnar RÚV og lögmaður vildi ekki tjá sig efnislega um orð Páls og um hvort þau stönguðust á við lög félagsins. Hann sagði það þó skýra stefnu stjórnar að engar meiriháttar breytingar verði gerðar á áherslum Rásar 1.


Tengdar fréttir

Sálfræðiþjónusta fyrir starfsmenn RÚV

Hallgrímur Indriðason, formaður Félags fréttamanna, segir að andrúmsloftið á RÚV sé lamað eftir að tilkynnt var um uppsagnirnar í morgun.

Starfsmenn RÚV í áfalli

Gunnar Magnússon, Formaður félags starfsmannasamtaka RÚV, segir starfsmenn í sjokki. Átakafundur var með starfsmönnum og útvarpsstjóra.

Þétt setið á samstöðufundi RÚV í Háskólabíó

Samstöðufundur um Ríkisútvarpið fór fram í Háskólabíói í kvöld og var aðalsalurinn þétt setinn. Yfirskrift fundarins var "Okkar Ríkisútvarp“ en ástæðan fyrir fundinum var mikill niðurskurður sem RÚV hefur þurft að taka á sig en 39 starfsmönnum var sagt upp störfum í síðustu viku hjá stofnuninni. Uppsagnir gætu síðan orðið fleiri í kjölfarið.

Margrét Erla Maack fær uppsagnarbréf

Sannkölluðu jarðarfararstemmning ríkir nú í útvarpshúsinu við Efstaleiti. Straumur fólks er upp á 5. hæð þar sem starfsmenn taka á móti uppsagnarbréfi.

Hollvinir gagnrýna útvarpsstjóra

Hollvinir Ríkisútvarpsins mótmæla hversu klaufalega, ófaglega og ómannlega var gengið fram í uppsögnum á RÚV.

Páll biðst afsökunar

"Auðvitað á maður ekki að reiðast svona, og þaðan af síður að kalla fólk illum nöfnum. Þannig að ég bið Helga Seljan og allan heiminn afsökunar," segir hann.

Fulltrúar minnihlutans óska eftir fundi með stjórn RÚV

Fulltrúar minnihlutans óskuðu á fundi allsherjar- og menntamálanefndar nú í morgun eftir því að fá stjórn RÚV fá fund nefndarinnar til að fara yfir þær aðgerðir sem boðaðar hafa verið í stofnuninni og þá stöðu sem af þeim leiðir.

Mörg þúsund mótmæla uppsögnum á RÚV

1.300 manns hafa boðað komu sína á mótmæli vegna niðurskurðar og uppsagna. Þá hafa rúmlega 8.000 skrifað undir áskorun til menntamálaráðherra um að afturkalla uppsagnirnar.

„Ég væri ekki leikari án RÚV“

Hópur leiðandi lista- og fræðafólks tjáir sig í nýju myndskeiði um mikilvægi menningar- og fræðsluhlutverks Ríkisútvarpsins.

Starfsmönnum fækkað um 60 hjá RÚV - 39 sagt upp í dag

Ríkisútvarpið ætlar að skera niður um fimmhundruð milljónir króna og fækka starfsmönnum um sextíu. Þrjátíu og níu uppsagnir koma nú þegar til framkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

„Þetta var erfiður fundur“

"Þetta var erfiður fundur enda erfiðar aðgerðir,“ sagði Páll Magnússon útvarpsstjóri stuttu eftir að tilfinningaþrungnum fundi lauk í Útvarpshúsinu í dag.

Fjöldi mótmælti við útvarpshúsið

Fjöldi fólks mótmælti fyrir utan útvarpshúsið við Efstaleiti í dag, en mótmælin voru undir yfirskriftinni Stöndum með Ríkisútvarpinu.

Minna RÚV með skýrara hlutverk

Uppsagnir hátt í fjörutíu starfsmanna Ríkisútvarpsins í gær vekja athygli og umræður. Gott fagfólk, sem margt hvert hefur orðið heimilisvinir landsmanna í gegnum viðtækin, missti vinnuna og að því er að sjálfsögðu eftirsjá.

Adolf Ingi var lagður í einelti á RÚV

Heimildir Vísis herma að Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður hafi átt mjög erfitt uppdráttar í starfi eftir að Kristín H. Hálfdánardóttir varð yfirmaður íþróttadeildarinnar við Efstaleiti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×