Nemendur í djammferðir á strippstaði Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 20. nóvember 2013 18:14 "Þeir fara á þessa strippstaði og kaupa sér drykki og sumir ganga jafnvel svo langt að kaupa sér dans,“ segir Baldvin sem segir að svo sé sagt að þetta sé allt í gríni. mynd/365
Stúdentablaðið hætti við birta viðtal við viðskiptafræðinema í Háskóla Íslands þar sem meðal annars var rætt um árlegar ferðir þeirra á nektardansstaði. Baldvin Þormóðsson, blaðamaður hjá Stúdentablaðinu, segist hafa rætt við tvo viðskiptafræðinema um þessar ferðir. Þeir eru báðir meðlimir í Tradition sem er sérstök skemmtinefnd fyrir viðskiptafræðinema í Háskóla Íslands. Viðtalið hafi verið tilbúið og blaðið á leið í prentun þegar félagar í Tradition óskuðu eftir því að viðtalið yrði ekki birt. Þar sem ekki hafi gefist tími til þess að endurskrifa greinina eða hugsa málið nánar hafi verið ákveðið að verða við bón þeirra og því var hætt við birtingu viðtalsins. Baldvini hafi þó eftir þetta liðið eins og hann væri þátttakandi í einhverskonar þöggun. Tilefni viðtals Baldvins við viðskiptafræðinemana var að ræða þessar ferðir sem tíðkast hafa um eitthvert skeið. Viðskiptafræðingar sem fréttastofa hefur rætt við kannast við að hafa farið í slíkar ferðir á meðan þeir voru í námi í Háskóla Íslands. Um er að ræða árlegt karla- og kvennakvöld þar sem bæði kynin koma saman. Í lok kvölds fara strákarnir svo á nektardansstaði og karlkyns strippari mætir til að skemmta stelpunum.Lýsa angist í augum kvennanna „Þeir fara á þessa strippstaði og kaupa sér drykki og sumir ganga jafnvel svo langt að kaupa sér dans,“ segir Baldvin sem segir að svo sé sagt að þetta sé allt í gríni. „Það skiptir engu máli hvort menn eru að fara þarna inn af alvöru eða í gríni, þeir eru að eyða pening þarna og þannig styrkja þeir starfsemina,“ segir Baldvin. „Það eru algeng rök með svona staði að fólk sem þar starfi geri það af fúsum og frjálsum vilja. En línan á milli þess að gera eitthvað af fúsum og frjálsum vilja og að neyðast til að gera eitthvað getur þó verið mjög þunn,“ segir Baldvin. Baldvin segir þá sem hann ræddi við hafa lýst því hvernig þeir hafi séð angistina í augum kvennanna. Þeir ættu því að átta sig á alvöru málsins. „Samfélagið hefur orðið fyrir vitundarvakningu, sérstaklega eftir umræðurnar í sumar um þessa staði og loksins er verið að loka þessum stöðum. Samt eru svona gæjar að halda svona kvöld og rosa stemning fyrir því,“ segir Baldvin.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Sjá meira