Þarna var gleðin greinilega við völd Ellý Ármanns skrifar 7. október 2013 14:30 Smelltu á myndina og notaðu örvarnar á lyklaborðinu til að skoða allt albúmið.
Yfir 500 manns, börn og fullorðnir, hlupu í sannkallaðri haustblíðu um Fossvog og Nauthólsvík um helgina þegar Nauthólshlaupið svokallaða fór fram í annað sinn. Þetta er mikil fjölgun frá því í fyrra þegar um 100 manns tóku þátt í hlaupinu. Það voru staðarhaldarar á veitingastaðnum Nauthól sem stóðu fyrir hlaupinu í samvinnu við Hlaup.is og var boðið upp á tvær vegalengdir, 5 og 10 km hlaup með endastöð við Nauthól í Nauthólsvík. Í lok hlaupsins beið hlauparanna dýrindis graskerssúpa úr eldhúsi meistarakokksins Eyþórs Rúnarssonar, sem gegnir stöðu yfirmatreiðslumanns á Nauthól. Eins og sést á meðfylgjandi myndum þá blandaðist skærlitaður fatnaður hlaupafólksins skemmtilega við haustlitina í Öskjuhlíðinni á meðan sólin skein á heiðum himni.Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi Nauthóls segir að þátttakan í hlaupinu hafi farið fram úr hennar björtustu vonum en fimmfalt fleiri hlupu í ár en í fyrra. „Við fengum hugmyndina að því að standa fyrir árlegu hlaupi hérna í fyrra. Við horfum á borgarbúa hjóla, ganga og hlaupa hér framhjá á göngustígnum allt árið um kring og okkur langaði að tengjast þessu fólki betur. Enda er Nauthóll vinsæl stoppistöð fólks sem nýtur útivistar hér í náttúruparadísinni í Nauthólsvík og Öskjuhlíð. Það kostar ekkert í hlaupið, við drögum út ýmsa matarvinninga og svo þykir fólki þessi hlaupaleið bara svo ótrúlega falleg hérna í Fossvoginum, svo maður tali ekki um í svona fallegu veðri eins og við fengum í dag. Þetta var alveg yndislegt og við viljum þakka öllum sem komu að skipulagningu Nauthólshlaupsins með okkur í ár sem og veðurguðunum sem komu með þessa bongóblíðu til okkar í dag.“Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða allar myndirnar í albúminu.Nautholl.isGuðríður María eigandi Nauthóls og Eyþór Rúnarsson matreiðslumaður með meiru.Heit gómsæt súpa beið hlauparanna þegar þeir komu í mark.Þessar konur sáu um að taka á móti hlaupurunum við marklínuna.Þreytan var mismikil eftir hlaup.
Mest lesið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira