Leikstjóri í kokkastarfi Elín Albertsdóttir skrifar 21. september 2013 12:11 Guðjón Pedersen lét draum sinn verða að veruleika og réði sig sem aðstoðarmann í eldhúsi á veitingahúsinu Geysi Bistro. Hann hefur lengi haft áhuga á matargerð. Mynd/Vilhelm
Guðjón Pedersen á langan feril að baki í heimi listarinnar. Hann hefur leikstýrt og sett upp fjölda leikrita og var stofnandi leikhópanna Frú Emilía og Svart og sykurlaust. Hann var leikhússtjóri Borgarleikhússins frá árinu 2000 til 2008. Helsta áhugamál hans utan leiklistar hefur lengi verið matargerðarlistin. Á rólegum tíma í leiklistinni í vor sá Guðjón auglýsingu frá Geysi Bistro þar sem óskað var eftir aðstoðarmanni í eldhúsið. „Mig hafði lengi langað að starfa á veitingahúsi,“ svarar hann þegar hann er spurður um ástæðu þess að hann sótti um. „Ég vann einu sinni við pitsubakstur en langaði í alvöru eldhús. Ég var búinn að horfa í kringum mig í þessum geira um tíma en var frekar svartsýnn. Svo virtist sem einungis mjög ungt fólk væri ráðið í svona starf. Þegar ég sá auglýsinguna frá Geysi ákvað ég að prófa að sækja um. Mér til mikillar undrunar var ég kallaður í viðtal og síðan ráðinn í starfið. Ég er ákaflega þakkátur fyrir að ég, gamli maðurinn, fékk þetta tækifæri,“ segir Guðjón sem er 55 ára. „Síðan er ég búinn að vera í eldhúsinu og finnst starfið stórskemmtilegt.“Afi var kokkur Guðjón eða Gíó, eins og hann er kallaður, segist ekki hafa fundið fyrir aldursfordómum í leiklistinni og því síður í nýju vinnunni. „Það er virkilega hressandi að breyta til og prófa eitthvað nýtt. Matargerðin hefur alltaf verið áhugamál hjá mér. Afi minn var matreiðslumaður svo þetta er í blóðinu. Guðjóni finnst mjög gaman í vinnunni. Hér er hann með matreiðslumanninum Edvardo Baca frá Spáni, sem hefur lengi starfað á Íslandi. „Það er alltaf gaman í eldhúsinu.“MYND/VILHELM Ég hef gaman af því að elda heima og hef verið aðalkokkurinn á heimilinu. Eldamennskan hefur verið mín afslöppun og hvíld frá stressi og álagi sem skapast oft í leiklistinni. Ég kveiki á kertum, set góða tónlist á og gleymi mér síðan í matargerðinni,“ segir Guðjón og bætir við að hann sé þó aldrei búinn að ákveða matseðilinn fyrir fram. „Ég veit yfirleitt aldrei þegar ég byrja að elda hver útkoman verður og geri sjaldnast sama réttinn tvisvar. Eitt er þó sem konan mín hefur einkarétt á en það er lasanja. Hún gerir það best,“ segir hann. Eldamennskan er enn í hávegum höfð á heimilinu þótt hann sé farinn að starfa í eldhúsi. „Ég er þó minna heima núna.“ Guðjón segir kokkastarfið hafa komið á óvart. „Sérstaklega hvað þetta er líkamlega erfitt starf og ekki mjög fjölskylduvænt. Vaktirnar standa yfir í tólf tíma og maður sest aldrei niður. Það er búið að vera brjálað að gera í allt sumar, jafnt erlendir ferðamenn sem Íslendingar.“ Guðjóni finnst mjög gaman í vinnunni. Hér er hann með matreiðslumanninum Edvardo Baca frá Spáni, sem hefur lengi starfað á Íslandi. „Það er alltaf gaman í eldhúsinu.“Mynd/ValliEndurvekur Frú Emilíu Guðjón er ekki hættur að fást við leikstjórn þótt hann hafi nóg að gera í kokkeríinu. „Ég er með tvö verk í vinnslu sem ég mun leikstýra og setja upp, annað í Danmörku og hitt í Færeyjum. Síðan erum við nokkrir gamlir félagar að endurvekja Frú Emilíu og ætlum að setja upp Vanja frænda eftir Anton Tsjekhov eftir áramót. Það verður gaman að athuga hvort sú gamla lifni ekki við eftir dvala í nokkur ár,“ segir hann. „Við höfum fengið aðstöðu í Tjarnarbíói og hefjum æfingar í nóvember. Ég vonast þó til að geta verið í kokkastarfinu áfram með leiklistinni,“ segir hann. Þegar Guðjón er spurður hvort ættingjar og vinir hafi ekki verið hissa þegar hann, margverðlaunaður leikstjóri sem stýrði einu stærsta leikhúsi borgarinnar, hafi ráðið sig sem aðstoðarmann í eldhúsi, svarar hann: „Ekki þeir sem þekkja mig en það kemur jú fyrir að aðrir verði undrandi. Ég hef stundum sagt við vini mína að mig langi til að opna veitingahús en það er fjarlægur draumur.“ List og lystHann segir að vissulega sé starfið öðruvísi en að vera leikhússtjóri. „Þetta er þó ekkert ósvipað því að vera leikstjóri. Það fer langur tími í undirbúning á báðum stöðum. Gagnrýni eða ánægja kemur að vísu strax í eldhúsið en seinna í leikhúsinu. En maður þarf að standa sig á báðum vígstöðvum. Þótt ég sé aðstoðarmaður fæ ég stundum að spreyta mig á flóknari réttum. Ég er orðinn miklu betri kokkur en ég var og mig langar að verða enn betri. Ég hef lært ótrúlega mikið í þessu starfi og er yfirmanni mínum afar þakklátur fyrir að hleypa karlinum inn.“ Í kokkastarfinu eru langar vaktir en frí á milli. Guðjón segist nota það vel til að vinna við leiklistina. „Leiklistin er alltaf ofarlega í huga og það er hægt að láta hugann reika við matargerðina,“ segir hann. Það hefur stundum hvarflað að honum að læra kokkinn en skólinn hefur fælt frá. „Mér hefur aldrei liðið vel í skóla. Ég hef alltaf viljað fara hina leiðina í lífinu þótt mér finnist allur fróðleikur skemmtilegur,“ segir Guðjón sem útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1981. Í berjamóGuðjón er kvæntur Katrínu Hall danshöfundi og þau eiga tvö börn, son sem er 23 ára og býr í Þýskalandi og 13 ára dóttur. Fjölskyldan var á leið vestur á Patreksfjörð í berjamó um helgina. Hann ætlar síðan að vinna úr berjunum sultu og nota þau í aðra matargerð. „Ég bara vona að enn sé hægt að finna ber,“ segir Guðjón sem er með eigin matjurtagarð og hefur gaman af því að nýta náttúruna í matargerðinni.
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira