"Rétt komst á milli ljósastaura“ Ellý Ármanns skrifar 4. september 2013 17:00
Crossfit Sporthúsinu eignaðist heimsmeistara í lok sumars þegar Hilmar Þór Harðarson tryggði sér heimsmeistaratitilinn í mastersflokki í aldursflokknum 55-59 ára á heimsleikunum í crossfit. Hilmar byrjaði seint á lífsleiðinni að hreyfa sig og hefur sýnt að það er allt mögulegt.Hilmar rétt náði að hlaupa á milli ljósastaura - sjáið hvaða formi hann er í í dag.Keppendur í mastersflokkum vinna sér inn keppnisrétt með því að verða meðal tuttugu efstu í sínum aldursflokki á Crossfit Open sem fer vanalega fram á bilinu febrúar til mars ár hvert. Hilmar tryggði sig inn á heimsleikana annað árið í röð og kom til leiks reynslunni ríkari í ár eftir að hafa hafnað í fjórða sæti í fyrra.Margir samverkandi þættir Hilmar segir enga eina ástæðu fyrir bætingunni á milli ára heldur sé um marga samverkandi þætti að ræða. "Ég var í líkamlega góðu ástandi, æfði crossfit markvisst allan veturinn og hugsaði vel um mataræðið og var meðvitaður um mikilvægi hvíldarinnar."Æfði tvisvar á dag - sex daga vikunnar Tveimur og hálfum mánuði fyrir keppni fór Hilmar að æfa tvisvar á dag, sex daga vikunnar. „Snillingurinn hann Davíð Arnar sá um að þjálfa mig á þessu tímabili en hann er mjög fær bæði í styrktar- og liðleikaæfingum. Mér fór mikið fram á þessum tíma. Í keppninni sjálfri var ég svo mjög einbeittur, agaður og vandvirkur, og skilaði það sér í fáum ógildum repsum (endurtekningum)," segir Hilmar. Segist Hilmar hafa skipulagt hverja æfingu fyrirfram og hvernig hann skipti henni upp og fylgdi því út keppnina. „Leifur Geir og Davíð Arnar voru mér hjálplegir við það, enda þekkja þeir mig vel, en ég held að þetta atriði hafi hjálpað mér mikið." Vissi að allt væri mögulegt Hilmar vill meina að keppnisreynslan á síðasta ári hafi komið sér vel í ár.Lærði af mistökunum„Ég lærði af þeim mistökum sem ég gerði þá. Ég passaði mig líka að vera ekki með neinar sérstakar væntingar fyrir keppni en vissi að allt var mögulegt. Ég var því kannski ekki að velta hlutunum of mikið fyrir mér, ákvað bara að gera mitt besta og hafa gaman af." Hilmar segir hugarfarið hins vegar skipta öllu þegar í keppnina er komið. „Maður finnur sig svolítið einan þarna úti og verður að passa sig að láta ekki stressið ná tökum á sér, hugsa um eitthvað jákvætt og skemmtilegt, gera sitt besta og njóta þess að vera þátttakandi í þessu móti sem fáir komast í. Mér tókst alltaf að að vera rólegur þegar ég var kominn inn á leikvanginn, hugsaði til æfingafélaga, vina og ættingja sem voru að fylgjast með heima og það var góð tilfinning."Trúði ekki að hann væri fyrsturHilmar átti erfitt með að trúa því þegar hann fór fyrstur manna yfir marklínuna og það vel á undan næsta manni. „Þetta var ótrúleg tilfinning og mikil sigurvíma sem fór um líkamann." Eftir að hafa tekið við góðum kveðjum úr öllum áttum skellti Hilmar sér í ísbað til að ná sér niður á jörðina. Hefur engan bakgrunn úr íþróttum Það á vel við í tilfelli Hilmars að það er aldrei of seint að byrja, en hann hefur engan bakgrunn úr íþróttum. „Ég byrjað að hreyfa mig reglulega í kringum árið 2000 en þá var ég vel yfir kjörþyngd og rétt náði að skokka á milli ljósastaura. Ég fór svo að mæta í Sporthúsið árið 2005 og hef verið þar síðan og verið duglegur að taka þátt í ýmsum keppnum með þeim góða félagsskap sem þar er." Núna hefur Hilmar nafnbótina „The Fittest on Earth" í sínum aldursflokki.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Lífið Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Umhugsunarefni fyrir foreldra vegna komu jólasveinanna Lífið Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Lífið Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Lífið Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Fleiri fréttir Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Gummi Ben mætti með Michelin-kokk Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass Áfall að dóttirin ætti 44 árum eldri kærasta Ómar Úlfur nýr dagskrárstjóri Bylgjunnar Sveppi gerði fyrsta ógeðsdrykkinn í tuttugu ár fyrir Bjarna Ben Dench segir Weinstein hafa mátt þola nóg Sjá meira