Forsætisráðherra vill aðkomu SÞ vegna Sýrlands Heimir Már Pétursson skrifar 5. september 2013 14:08 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson með öðrum leiðtogum Norðurlandanna og Obama. Mynd/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti er spenntur fyrir því að koma í opinbera heimsókn til Íslands og sýndi málefnum norðurslóða mikinn áhuga á fundi sínum með leiðtogum Norðurlandanna í Stokkhólmi í gær. Forsætisráðherra segir íslensk stjórnvöld leggja áherslu á aðkomu Sameinuðu þjóðanna í málefnum Sýrlands. Bandaríkjaforseti átti þriggja stunda kvöldverðarfund með leiðtogum Norðurlanda í boði Fredriks Reinfeldts forsætisráðherra Svíþjóðar í gærkvöldi. Á fundinum reifuðu leiðtogar Norðurlandanna nokkur mál fyrir Obama og þeirra á meðal Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sem fór yfir málefni norðurslóða. „Það sem mér finnst standa upp úr er mikilvægi þess að Norðurlöndin vinni saman í samskiptum við aðrar þjóðir, ekki hvað síst Bandaríkin. Bandaríkjaforseti er mjög hrifinn af mörgu því sem Norðurlöndin gera. En sérstaklega barst í tal hversu mikilvægt það væri að þessi lönd sem eru meðlimir að ólíkum bandalögum eða samtökum og eiga á vissan hátt ólíka hagsmuni, eru þó með þetta sterka samband sem skapar möguleika á tengingar í allar áttir,“ segir forsætisráðherra. Sigmundur Davíð segir að rætt hafi verið um málefni Sýrlands, öryggismál, meðal annars netöryggismál, töluvert um umhverfis- og orkumál og norðurslóðamál. „Sem mér þótti skemmtilegast því ég hafði tekið að mér að undirbúa kynningu á stöðu mála þar og Bandaríkjaforseti er greinilega mun áhugasamari um þau mál en Bandaríkjamenn hafa kannski verið um nokkur skeið , og utanríkisráðherra Bandaríkjanna reyndar líka,“ segir Sigmundur Davíð. Hann telji því að meiri áhersla verði lögð á norðurslóðir en verið hafi hingað til. Bandaríkjaforseti virðist hafa einlægan áhuga á umhverfismálum og þeirri þekkingu sem Íslendingar hefðu á sviði orkumála. En málefni Sýrlands voru líka fyrirferðarmikil og Sigmundur Davíð segir Obama hafa fært fram rök fyrir aðgerðum þar. „Án þess að ég fari nákvæmlega að útlista hvað hann sagði á þessum fundi , þá hefur hann auðvitað lýst því yfir að hann vilji gjarnan fá stuðning sem flestra við þær aðgerðir sem hann telur nauðsynlegar í Sýrlandi. Og það hefur líka komið fram opinberlega að Norðurlöndin, að minnsta kosti flest, leggja áfram mikla áherslu á aðkomu Sameinuðu þjóðanna,“ segir forsætisráðherra. Og það væri afstaða íslenskra stjórnvalda þótt öryggisráðið hefði hingað til ekki staðið sig sem skyldi. En forsætisráðherra bauð Obama í opinbera heimsókn til Íslands. Ef Obama þekkist boðið væri það í fyrsta skipti sem forseti Bandaríkjanna kæmi hingað í opinbera heimsókn, þótt Nixon og Reagan hafi komið hingað í þeim erindum að hitta aðra erlenda leiðtoga.Hvernig tók hann í það?„Hann tók nú skemmtilega vel í það, ekki það að slíku er nú oft vel tekið. En það vildi svo vel til að upplýsingafulltrúi hans er nýbúinn að vera á Íslandi og Bandaríkjaforseti var nýbúinn að sitja með honum og ræða um Ísland. Upplýsingafulltrúinn var mjög áhugasamur um landið eftir heimsóknina og það hafði smitast yfir í forsetann sem var held ég bara býsna spenntur fyrir því að heimsækja Íslendinga,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína Innlent Fleiri fréttir „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Sjá meira