Kolla með eigin þátt á Stöð 2 Ellý Ármanns skrifar 29. ágúst 2013 13:00 Kolbrún Björnsdóttir.
Athygli vakti þegar Kolbrún Björnsdóttir sagði upp á Bylgjunni fyrr í sumar eftir að hafa vaknað með Íslendingum á hverjum virkum morgni í hvorki meira né minna en ríflega sex ár. Kolbrún hefur ráðið sig til Stöðvar 2 með nýjan sjónvarpsþátt.Undirbúningur hafinn„Þessa dagana er ég að undirbúa spjallþátt sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í haust. Stefnan er að fyrsti þáttur fari í loftið í október þannig að það er allt að fara á fullt," segir Kolbrún þegar við spyrjum hana um nýja þáttinn sem mun einfaldlega heita KOLLA.Með áherslu á lausnir„Umræðuefnin verða af ýmsum toga og margar hugmyndir í gangi. Mig langar til dæmis að fjalla um einelti, stjúpfjölskyldur, meðvirkni og sambönd svo eitthvað sé nefnt. Og þar sem ég er mikil bjartsýnismanneskja og þykir miklu skemmtilegra að líta á glasið sem hálffullt en hálftómt ætla ég að fá viðmælendur mína til að benda á lausnir og hvað við getum gert. Finna verkfærin í töskuna okkar. Svo eru margir einstaklingar sem mig langar mikið til að spjalla við um lífið og tilveruna. Þannig að möguleikarnir eru endalausir," segir hún.Stígur út fyrir þægindarammann „Ég viðurkenni það fúslega að þrátt fyrir að ég hlakki mikið til að takast á við þetta verkefni þá leynist kvíðapúkinn líka í mér. Að fara úr mínu umhverfi til sex ára sem er útvarpið með öðrum þáttastjórnanda yfir í að stjórna eigin þætti í sjónvarpi. En snýst ekki lífið líka um að skora á sjálfan sig og stíga út fyrir kassann? Kannski ég geri þátt um það, að stíga út fyrir þægindahringinn," segir hún og hlær.Kolla kvaddi Bylgjuna í sumar.Sjá myndir þegar Bylgjan kvaddi Kollu.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira