Fótbolti

Einvalalið listamanna í auglýsingu fyrir kvennalið KR

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stórskemmtileg sjónvarpsauglýsing var gerð á dögunum til að kynna íslenska kvennaknattspyrnu og þá sérstaklega meistaraflokk kvenna hjá KR.

Auglýsingin var unnin í samstarfi við True North og Trickshot. Leikstjórarnir eru Samúel og Gunnar.

Nokkrir helstu listamenn landsins auk þekktra einstaklinga koma fram í myndinni auk leikmanna kvennaliðs  KR.

Allir sem koma að myndinni gáfu vinnu sína fyrir verkefnið og fengu því ekkert greitt.

Hér að ofan má sjá afraksturinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×