Fótbolti

Meistaradeildarmörkin: Bayern slapp með skrekkinn

Bayern München og Malaga tryggðu sér í kvöld síðustu farseðlana í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Dregið verður í átta liða úrslitin á föstudag.

Bayern var þó nálægt því að falla úr keppni eftir 0-2 tap á heimavelli gegn Arsenal. Þýska liðið komst áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Malaga lagði Porto, 2-0, og vann rimmu liðanna 2-1 samanlagt.

Þorsteinn Joð fór yfir leiki kvöldsins með Hirti Hjartarsyni og Reyni Leóssyni. Horfa má á þáttinn hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×