Kínverjar sammála Íslendingum um Miðleiðina 15. mars 2013 17:00 Össur Skarphéðinsson ásamt Huigen Yang, yfirmanni Kínversku Heimskautastofnunarinnar, Mynd/Utanríkisráðuneytið
Kínverjar telja mögulegt að innan sjö ára, eða árið 2020, geti Miðleiðin yfir Norðurpólinn frá Kyrrahafi til Norður-Atlantshafsins orðið farvegur vöruflutninga frá Kína til Evrópu sem svari til 700 milljarða Bandaríkjadala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Ætla Kínverjar að Miðleiðin verði fær allt að fjóra mánuði á ári og 10% vöruflutninga þeirra til Evrópu geti farið fram á þeirri leið. „Það skiptir Ísland gríðarmiklu máli að Kínverjar skuli sammála okkur um gildi Miðleiðarinnar, því hún gæti bæði haft mjög mikil efnahagsleg áhrif á Íslandi, en ekki síður stóraukið geópólitiskt vægi Íslands á nýjan leik, bæði gagnvart Evrópu, Ameríku og Asíu. Við höfum stöðugt haldið því fram að þessi leið sé heppilegust vegna ýmissa ástæðna. Ekki síst strauma og ísþykktar og það hefur mjög mikla þýðingu fyrir Ísland að stórveldið Kína sé á sama máli," segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Össur fundaði með Huigen Yang, yfirmanni Kínversku Heimskautastofnunarinnar, sem staðsett er í Shanghai. Þeir ræddu m.a. þá miklu möguleika sem felast í siglingum yfir Norðurpól í kjölfar bráðnunar ísþekju Norður-Íshafsins. Hún stytti leiðina milli hafna við Kyrrahaf og Atlantshaf um allt að 40%. Bæði Íslendingar og Kínverjar séu sammála um að Miðleiðin sé heppilegasta leiðin milli meginlandanna en með notkun hennar geti opnast miklir möguleikar á alþjóðlegri vöruhöfn á Íslandi. Kínverski rannsóknarísbrjóturinn Snjódrekinn, sem heimsótti Ísland sl. sumar, sigldi Miðleiðina til baka. Huigen Yang telur að árið 2020 muni leiðin verða fær fjóra mánuði á ári, þó hugsanlega þurfi ísbrjóta til að opna hana. Fram kom, að Kínverjar undirbúa nú smíði nýs rannsóknarísbrjóts sem hannaður er af Finnum. Össur og Huigen Yang ræddu einnig áform um stofnun sameiginlegrar rannsóknarstofnunar um norðurljós hér á landi, en samningur um samstarf Íslands og Kína í norðurslóðarannsóknum var undirritaður í heimsókn Wen Ji Bao, forsætisráðherra Kína á síðasta ári.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Sjá meira