Innlent

Skálmöld svalaði rokkþyrstum föngum

Þakið ætlaði bókstaflega að rifna af fangelsinu að Litla Hrauni þegar þungarokkarnir í Skálmöld svöluðu rokkþyrstum föngum þar í gærkvöld.

Rokksveitin Skálmöld hefur komið víða við á ferð sinni í kringum landið ber hið viðeigandi heiti Myrkur Kuldi Ís og snjór. Í gær var röðin komin að fangelsinu á Litla-Hrauni en sveitin hefur lengi haft það á stefnuskrá sinni að spila í fangelsinu.

Á tónleikunum tóku Skálmaldarmenn lög af plötum sínum tveimur og höfðu menn á orði að svo þungt rokk hefði ekki áður hljómað á hrauninu.

„Við erum búnir að vonast til þess í ár að fá þá hingað og þeir hafa verið á tónleikaferðalagi. Við vissum að við yrðum eitthvað að sitja á hakanum, en við vissum að það yrði ekki lengi. Þetta er langþráður draumur," segir fangi á Litla-Hrauni.

Og þeir hafa staðið undir væntingum?

„Algjörlega, þetta er það öflugasta sem hefur komið hingað til og eitt af því öflugasta sem ég hef orðið vitni að í rokkbransanum."

Snæbjörn Ragnarsson, er bassaleikari Skálmaldar.

„Þetta er eina lokaða giggið á túrnum - eina einkapartýið."

Hann segir að þeir félagar hafi skemmt sér konunglega.

„Þetta er eiginlega meira gaman en við héldum - þetta var geðveikt."

Og hann tekur vel í að koma aftur síðar.

„Já ef strákarnir vilja fá okkur sem mér sýnist að sé - þá er það engin spurning."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×