Fótbolti

Reyndi að fótbrjóta Ronaldinho | Myndband

Brasilíski töframaðurinn Ronaldinho var heppinn að fótbrotna ekki þegar argentínski leikmaðurinn Biego Braghieri tæklaði hann með báðum fótum í leik Atletico Mineiro og Arsenal í brasilíska boltanum.

Argentínumaðurinn bauð upp á fljúgandi tveggja fóta tæklingu og það var ekki honum að þakka að ekki fór verr.

Tæklingin kom undir lok leiksins en lið Braghieri, Arsenal, var að tapa 5-2 og leikmaðurinn augljóslega pirraður.

Dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu en sá enga ástæðu til þess að spjalda leikmanninn eins ótrúlega og það hljómar. Ronaldinho tók vítið en klúðraði spyrnunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×