Fótbolti

Barton gerði grín að nefi Zlatans | Myndband

Vandræðagemsinn Joey Barton lendir í vandræðum alls staðar þar sem hann spilar. Hann lenti í átökum gegn Zlatan Ibrahimovic í gær.

Barton, sem leikur með Marseille, fékk þá dæmda aukaspyrnu á Zlatan, leikmann PSG. Þeir fóru í kjölfarið að rífast enda báðir þekktir skaphundar.

Barton varð að sjálfsögðu að fara með rifrildið alla leið og gerði grín að stóru nefi Zlatans með handabendingum.

Svíinn tók ekki illa í grínið og hló bara að Barton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×