Eldar Ástþórsson: Mikil leynd hvíldi yfir þessum lista Sara McMahon skrifar 30. ágúst 2013 10:00 Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP, segir það mikla viðurkenningu fyrir EVE Online að hafa lent á lista yfir bestu tölvuleiki allra tíma. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta er fyrst og fremst heilmikil viðurkenning fyrir okkur í CCP og okkar vinnu,“ segir Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi hjá tölvuleikjaframleiðandanum CCP. Tölvuleikurinn EVE Online, sem fagnaði tíu ára afmæli sínu á árinu, var valinn einn af 100 bestu tölvuleikjum allra tíma af tímaritinu PC Gamer. „Við fengum að vita þetta um leið og blaðið kom út. Mikil leynd hvíldi yfir þessum lista og störfum dómnefndarinnar. Blaðinu var fyrst dreift til okkar sem á listanum voru og svo lenti það í verslunum á svipuðum tíma,“ segir hann. EVE Online situr í tólfta sæti listans, en besti leikur allra tíma þykir vera The Elder Scrolls V: Skyrim. Viðurkenning sem þessi hefur að sögn Eldars jákvæð áhrif í för með sér fyrir fyrirtækið. „Við höfum áður hlotið viðurkenningar og verðlaun fyrir leikinn og það skilar sér helst í enn frekari athygli á honum. Til lengri tíma litið mætti þó sannarlega segja að það skilaði okkur fleiri spilurum.“ Í dag eru um 500 þúsund áskrifendur að leiknum, sem hefur tekið umtalsverðum breytingum á þeim tíu árum sem liðið hafa frá sköpun hans. „Leikurinn hefur tekið umtalsverðum breytingum á þessum árum þó að kjarninn í hugmyndafræðinni sé enn til staðar. Á meðan aðrir leikir á þessum lista heyra nú sumir hverjir sögunni til er EVE enn að stækka og eflast og það er ekki síst því að þakka að hann er í stöðugri þróun,“ segir Eldar að lokum.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira