Þrjár sýningar opna í Hafnarhúsinu á morgun Ólöf Skaftadóttir skrifar 13. september 2013 10:00 Verkið Allvision frá árinu 1976 eftir Steinu Vasulka. Mynd/Listasafn Reykjavíkur
Fjölbreyttar listsýningar eru á dagskrá Listasafns Reykjavíkur í vetur. Á morgun, þann 14. september klukkan fjögur, verða opnaðar þrjár sýningar í Hafnarhúsinu sem marka upphaf sýningatímabils vetrarins. Þetta eru sýningarnar Brunnar eftir litháíska listamanninn Zilvinas Kempinas, Vera eftir Tomas Martišauskis sem einnig er frá Litháen og sýningin Íslensk vídeólist frá 1975-1990 þar sem sýnd verða verk eftir á annan tug listamanna. „Á sýningunni er til dæmis að finna verk eftir Steinu Vasulka sem er meðal frumkvöðla á sviði vídeólistar á heimsvísu og myndband með Sykurmolunum,“ segir Berghildur Erla Bernharðsdóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur. „Verkin voru flest sýnd í fyrsta skipti hér á landi á níunda áratug síðustu aldar. Fæst þeirra hafa verið sýnd hér síðan. Markmiðið með sýningunni er að draga fram verk sem sýna fyrstu tilraunir íslenskra listamanna til að nota vídeómiðilinn til listsköpunar. Það gerist um svipað leyti og vídeóleigurnar héldu innreið sína í íslenskt menningarlíf og tónlistarmyndbönd urðu hluti af markaðssetningu nýrra hljómplatna,“ útskýrir Berghildur.Zilvinas Kempinas, Brunnar, 2011Brunnar er staðbundin innsetning. „Segulbönd bylgjast í gusti frá tíu aflmiklum loftræstiblásurum og mynda þannig eins konar landslag. Litháíski listamaðurinn Zilvinas Kempinas hefur nýtt sér segulbönd úr VHS-spólum til að skapa verk sem virðast hafna upprunalegu hlutverki miðilsins. „Verkin eru byggð á nýrri tækni og hafa löngum vakið nostalgíu hjá þeim sem voru vanir segul- og myndböndum,“ segir Berghildur Erla jafnframt. „Zilvinas Kempinas hefur haldið fjölda sýninga í Bandaríkjunum og víðar, hann var fulltrúi Litháens á Feneyjatvíæringnum árið 2009 og hlaut Calder-verðlaunin frá Calder-stofnuninni árið 2007,“ bætir hún við.Verkið Creature/Vera eftir Tomas Martišauskis,Vera er nýjasta verk litháíska listamannsins Tomas Martišauskis sem einnig verður opnuð á morgun. Tomas Martišauskis býr og starfar í Vilníus og hefur hingað til aðallega sýnt verk sín í Litháen. „Í þessu verki kemur fram póstmódernísk sýn á tengsl höggmynda og rýmis. Listamaðurinn umbreytir einstökum skúlptúr í form nútímamiðla og víkkar þannig út hugmyndir okkar um hefðbundna skúlptúra. Verkið og þrjár birtingarmyndir þess eru sýndar en þær koma fram í þrívíddarmynd, á myndbandi og í hljóðmynd. Hið mótsagnakennda samband milli verksins og afritanna sýnir ólíka þætti verksins: Innviði þess og ytra borð, hljóðheim og þrívídd í hreyfimynd og teikningu,“ segir Berghildur að lokum.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira