Stærsta fréttastofa landsins 13. september 2013 15:46 "Þetta hefur tekið tvo til þrjá mánuði, nú er rykið að setjast og fólk að finna sína fjöl,“ segir Mikael.
Ráðist var í sameiningu fréttastofanna með það að markmiði að draga úr tvíverknaði og nýta betur krafta þeirra rúmlega hundrað starfsmanna sem koma að fréttum miðlanna. „Þetta hefur tekið tvo til þrjá mánuði, nú er rykið að setjast og fólk að finna sína fjöl. Á þessum skamma tíma hefur okkur tekist að búa til stærstu fréttastofu landsins. Þetta hefur gengið ótrúlega vel. Vonum framar. Fréttamenn eru reyndar þeirra gerðar að þeir kunna að koma að auðu blaði. Hver dagur er öðrum frábrugðinn og það er meðal annars það sem gerir starf fréttamanns að skemmtilegasta starfi sem fyrir finnst,“ segir Mikael. Hann segir magnað að fylgjast með fólkinu sem starfar á fréttastofu Stöðvar tvö. „Þú finnur varla vinnustað þar sem unnið er á meiri hraða. Fréttamenn mæta á morgnana með allt undir og hlutirnir eru fljótir að breytast. Á fréttastofu Stöðvar 2 vinnur samheldinn hópur sem er vanur að vinna undir gríðarlegri pressu og standa skil á sínu að kvöldi.“Fréttir.Fréttastofa Stöðvar 2 býr að kröftum fagfólks og þar hefur verið lagt upp úr því að blanda saman fólki með reynslu og nýju hæfileikafólki. „Fjölmiðlar hafa laðað til sín margt það besta og kraftmesta fólk sem byggir landið; lifandi og brennandi af áhuga á umhverfi sínu.“ Sameinuð fréttastofa hefur það í för með sér að margir fréttamenn vinna jöfnum höndum fréttir fyrir ólíka miðla. „Á fréttastofunni er litið svo á að það séu vinnubrögðin og fagleg sjónarmið blaðamennskunnar sem ráða inntaki sögunnar hverju sinni, en ekki umbúðirnar sem slíkar. Þó verður vitaskuld að taka tillit til þess að form og inntak haldist í hendur. Það er ekki síst þar sem fréttamenn þurfa að nýta hæfileika sína og reynslu,“ segir Mikael.En munum við sjá einhverjar breytingar á fréttunum í vetur? „Við erum þessi misserin að taka stökk fram á við hvað tæknina varðar. Ráðist hefur verið í umtalsverðar fjárfestingar á nýjum hugbúnaði og tækjum. Þá höfum við nú aðgang að fyrsta útsendingarbílnum sem sendir út í HD. Með tilkomu hans geta áhorfendur átt von á fleiri beinum útsendingum í fréttum Stöðvar 2 og að fá fréttirnar í auknum mæli beint í æð.“
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Lífið samstarf Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Lífið samstarf Fleiri fréttir Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Sjá meira