Bara hamingja og gleði 13. september 2013 15:45 Sælkeraferðin.
Það gleðjast eflaust margir yfir endurkomu einnar ástsælustu sjónvarpskonu landsins á Stöð 2, en Vala Matt ætlar að sjá um tvo ólíka þætti á Stöð í vetur. Hún ríður á vaðið þann 19. september næstkomandi með þáttum sem nefnast Sælkeraferðin. Þar ferðast Vala í kringum Ísland og heimsækir annálaða sælkera. „Við förum í ævintýralegt ferðalag um Ísland, hittum dúndurskemmtilegt fólk og lærum að elda dýrindis mat,“ segir Vala um þættina góðu.HeilsugengiðEftir áramótin ætlar Vala, ásamt fleirum, að huga að heilsunni í þáttunum Heilsugengið. „Í þáttunum fáum við að fylgjast með þekktum einstaklingum sem eru að kljást við hversdagsvandamál og jafnvel sjúkdóma tengda mataræði og lífsstíl. Við fáum að vita hvaða fæðutegundir við eigum að borða til þess að veita okkur ró, hvaða mat við eigum að borða til þess að verða orkumeiri, hvaða mat við getum notað til að líta betur út og hvað við eigum að borða til að finna fyrir meiri gleði. Ekkert meinlæti, bara hamingja og gleði,“ lofar Vala. Heilsugengið dregur nafn sitt af Völu og sérfræðingunum tveimur sem verða henni til halds og trausts í þáttunum góðu. „Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti, mun taka viðmælendur í heilsugreiningu og gefa síðan fagleg ráð um breytt mataræði og lífsstíl. Sólveig Eiríksdóttir, heilsukokkur og besti hráfæðiskokkur heims, kemur svo og býr til dýrindis heilsumat í samræmi við ráðleggingar Þorbjargar.“ Sælkeraferðin Hefst á Stöð 2 19. september. Heilsugengið Hefst á Stöð 2 í janúar.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Fleiri fréttir Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sjá meira