Tuttugu ár eru nú liðin frá því að Conan O'Brien, einn ástsælasti spjallþáttastjórnandi Bandaríkjanna, hóf göngu sína með þættina Late Night with Conan O'Brien á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC.
O'Brien endaði sinn fyrsta þátt, fyrir tuttugu árum síðan, með því að standa brosandi uppi á stól og þykjast hengja sig.
Ástæða uppátækisins var sú að mikils metið fólk innan skemmtanaiðnaðarins í Bandaríkjunum höfðu spáð því að Conan O'Brien myndi ekki standa sig í stykkinu sem stjórnandi spjallþáttar, heldur myndi fylgja í fótspor forvera sinna, þeirra Chevy Chase og Alan Thicke sem áttu ekki velgengni að fagna í sínum tilraunum til þess að stjórna spjallþáttum.
O'Brien hafði áður verið höfundur hjá þáttum á borð við The Simpsons og Saturday Night Live.