Innlent

Hugsuðu allir um að svipta sig lífi eftir misnotkunina

Sunna Valgerðardóttir skrifar
Sigrún Sigurðardóttir.
Sigrún Sigurðardóttir.
Menn sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku upplifa djúpa og nær óbærilega þjáningu eftir brotin sem hefur áhrif á allt þeirra líf. Mörg fórnarlambanna hafa ítrekaðar sjálfsvígshugsanir og hafa komist nálægt því að svipta sig lífi.

Þá eru karlkyns fórnarlömb tíu sinnum líklegri til að glíma við geðraskanir síðar á lífsleiðinni en þeir sem ekki hafa orðið fyrir ofbeldi.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri doktorsrannsókn Sigrúnar Sigurðardóttur, lektors við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri, um líðan íslenskra karlmanna sem voru misnotaðir í æsku. Rannsóknin var birt í ritrýnda tímaritinu Scandinavian Journal of Caring Sciences í desember síðastliðnum.

Tekin voru viðtöl við sjö karla á aldrinum 30 til 55 ára sem allir höfðu orðið fyrir miklu ofbeldi og hófst misnotkunin hjá flestum þegar þeir voru á aldrinum 4 til 5 ára og stóð yfir í langan tíma.

Sigrún kemst að þeim niðurstöðum að karlar sem hafa verið misnotaðir eigi frekar á hættu að fá alvarlegt þunglyndi, kynsjúkdóma og HIV og geti ekki myndað tilfinningaleg sambönd við maka sinn. Allir mennirnir nema einn eru feður án forræðis. Allir hafa hugsað ítrekað um að svipta sig lífi.

Sigrún segir þá miklu fordóma sem ríkja hjá fórnarlömbunum vegna ofbeldisins hafa komið sér á óvart.

„Þeir segja ekki frá ofbeldinu út af eigin fordómum. Lengi vel var bara hlegið að því ef karlmanni var nauðgað, það átti ekki að vera hægt,“ segir hún.

Einn maður í rannsókn Sigrúnar hafði verið misnotaður af nágrannakonu sinni og segir hún það hafa verið enn erfiðara fyrir hann að kljást við.

„Það er enn meira tabú og eitthvað sem má ekki tala um,“ segir hún. „Það var erfitt fyrir hann að átta sig á því. Þetta eru fordómar og þöggun sem er mjög erfitt að glíma við.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×