„Það var nú bara hún systir mín sem sagði mér frá þessu og hvatti mig til þess að fara í prufur,“ segir Björn Jónsson, knattspyrnumaður úr KR, en hann ætlar að setja svarthvítan búning Vesturbæjarliðsins á hilluna um helgina. Þess í stað ætlar Björn að ganga sýningarpallana á Reykjavík Fashion Festival en þetta mun vera frumraun hans í fyrirsætubransanum. Það voru hönnuðir íslenska fatamerkisins Hugins Munins sem fengu knattspyrnukappann til liðs við sig.
„Ég fór á einhverja gönguæfingu um daginn, sem gekk alveg fínt held ég. Ég á allavega ekki að mæta á fleiri æfingar,“ segir Björn og kveðst ekki stressaður þrátt fyrir reynsluleysið á pöllunum. Björn þykir liðtækur knattspyrnumaður en hann spilaði með Skagamönnum upp alla yngri flokkana. Árið 2005 hélt hann í atvinnumennsku til hollenska liðsins Heerenveen en sneri heim árið 2011. Hann er nú á mála hjá KR-ingum en hefur þurft að glíma við meiðsli um langt skeið.
„Ég er nýbúinn að ná mér af meiðslunum og var að byrja æfa aftur í þessum mánuði. Ég er ekki búinn að spila síðan í sumar. Það var líka þess vegna sem ég sagði já við þessu um helgina. Ég er hvort eð er alltaf meiddur.“ En hvað segja liðsfélagarnir í Vesturbænum um fyrirsætustarfið? „Þeir hafa staðið með mér og hvatt mig til þess að gera þetta,“ segir Björn, og tilhlökkun fyrir helgina leynir sér ekki.
