Miley Cyrus: Úr barnastjörnu í kyntákn? 4. september 2013 20:00 AFP/NordicPhotos
Miley Cyrus er dóttir kántrísöngvarans Billy Ray Cyrus. Hún hóf leikferil sinn fyrir alvöru í Disney-þáttaröðinni Hannah Montana aðeins þrettán ára gömul. Þar lék hún Miley Stewart, unga stúlku sem lifði eðlilegu lífi á daginn en brá sér í gervi poppstjörnunnar Hannah Montana á kvöldin. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Miley unnið sér margt til frægðar. Hún hefur gefið út smelli á borð við Party in the USA og We don’t stop, sem hafa selst í milljónum eintaka um allan heim. Miley Cyrus verður tuttugu og eins árs á árinu og náði að öllum líkindum hápunkti frægðar sinnar eftir framkomu sína á VMA-hátíðinni á vegum MTV í síðustu viku þar sem hún kom fram með Robin Thicke, söngvara sumarsmellsins Blurred Lines, á heldur kynferðislegan máta. Myndband af flutningi hennar á VMA-hátíðinni má sjá neðst í fréttinni.AFP/NordicPhotos Miley Cyrus og kántrísöngvarinn Billy Ray Cyrus, faðir Miley, á tónleikum til heiður Elvis Presley í Memphis í Tennessee árið 1994. Miley var þá tveggja ára gömul.AFP/NordicPhotosMiley og Billy Ray eiga náið feðginasamband. Billy Ray lék meðal annars föður Miley í Disney-þáttaröðinni Hannah Montana, sem kom Miley á kortið.AFP/NordicPhotosHér eru feðginin í hlutverki Miley og Robby Ray Stewart í þætti af Hannah Montana sem helgaður var fjölskyldum hermanna í Írak. Miley helgaði tvö lög fjölskyldum hermanna, Been Here All Along og I‘m Still Good. Samkvæmt miðlum vestanhafs hefur Billy Ray sagt opinberlega frá því að hann sjái eftir að hafa leyft dóttur sinni að leika í þáttunum.AFP/NordicPhotosMiley Cyrus heldur tónleika, aðeins 14 ára gömul, í San Jose í Kaliforníu við gríðarlega góðar undirtektir. Mörg þúsund manns sækja tónleika söngkonunnar í hvert skipti sem hún kemur fram.AFP/NordicPhotosÓskarsverðlaunapartí Vanity Fair í Vestur-Hollywood. Hér er Miley Cyrus ásamt kærasta sínum, ástralska leikaranum Liam Hemsworth sem hefur meðal annars leikið í Hungurleikunum.AFP/NordicPhotosMiley Cyrus ásamt Robin Thicke. Saman tóku þau lagið Blurred Lines á VMA-hátíðinni sem haldin var í Brooklyn í New York í lok ágúst. Flutningur Miley þótti helst til kynferðislegur á köflum og margir hafa opinberlega lýst yfir hneykslan sinni á tilburðum Miley á sviðinu. Þá var slegið met í tístum á samfélagsmiðlinum Twitter um atburðinn og flest voru þau á neikvæðum nótum. Miley lætur þó ekkert slá sig út af laginu og segir alla umfjöllun vera góða umfjöllun.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira