Bíður svars frá konunni með schaefer-hundinn 20. júlí 2012 10:00 Oddbjørn leggur mikið á sig til að finna draumakonuna sína, sem hann hefur rekist á í tvígang hérlendis en aldrei náð að tala við. Mynd/einkaeign „
Það sendi mér kona skilaboð á Facebook í gær og sagðist vera vinkona þeirrar sem ég væri að leita að. Hún sendi mér upplýsingar um hana og ég er búin að senda henni póst," segir Oddbjørn Skjerdal, sem leitar íslenskrar draumadísar sem hann hefur rekist á tvívegis í heimsóknum sínum hingað til lands. Oddbjørn brá á það ráð í örvæntingarfullri leit sinni að senda inn auglýsingu í smáauglýsingar Morgunblaðsins og lýsa eftir henni. Auglýsingin hefur farið sem eldur í sinu um netheima og er þegar komin með vel yfir eitt þúsund meðmæli á Facebook. „Vá, mér datt ekki í hug að svona margir myndu lesa þetta. Þetta hræðir mig pínu en ég hef aldrei gert neitt svipað þessu áður," segir Oddbjørn hissa þegar hann fréttir af vinsældum auglýsingarinnar. Forsaga málsins er sú að hann kom hingað til lands árið 2010 og rakst þá á ljóshærða konu, um 170 sentimetra háa, með fallegt bros og schaefer-hund við Olís í Hvalfirðinum. „Það gerðist eitthvað sérstakt innra með mér strax og ég sá þessa konu," segir Oddbjørn sem hélt dagbók á meðan á dvöl hans hér stóð og gat því nefnt stund og stað hittingsins nákvæmlega. Hann guggnaði þó á að tala við hana og hélt leiðar sinnar, sá svo eftir því og sneri við en þá var hún farin. Það var svo núna í júní að hann var staddur hérlendis aftur í heimsókn og sá þá konu standa fyrir framan Kaffismiðjuna. „Ég fann þessa tilfinningu aftur um leið og ég sá hana. Það var samt ekki fyrr en ég var kominn heim um kvöldið að ég áttaði mig á því hvaða tilfinning þetta var og að þetta hefði verið sama konan og fyrir tveimur árum, með sama hundinn," segir Oddbjørn rómantískur í bragði. Hann fann strax að hann yrði að finna þessa konu sem vakti slíkar tilfinningar innra með honum svo hann hafði samband við íslenskan nágranna sinn og spurði hann ráða. „Hann bauðst til að þýða fyrir mig auglýsingu yfir á íslensku og senda inn í blaðið," segir Oddbjørn. Hann var búinn að vera í vinnunni allan daginn þegar blaðamaður náði af honum tali og því ekki búinn að sjá hvort daman, sem hann sendi póst í gær, hefði svarað. „Ég er mjög spenntur að koma heim og sjá hvort mín bíði skilaboð," segir hann. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ Sjá meira