Lífið

Leiðinlega fólkið er nauðsynlegt

Kjartan Guðmundsson skrifar
Við alla sem ég hitti, sem eru á mínum aldri, segi ég það sama: Notið tímann í að knúsa hvert annað, því þótt við endum öll á sama elliheimili eftir tuttugu ár er ekkert víst að við þekkjum hvert annað. Þetta er nú ekki svo alvarlegt, þetta líf. Þetta er bara ferli. Bara ástand," segir tónlistar- og myndlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson sem verður sextugur næsta miðvikudag, þann 13. júní.

Af þessu tilefni kemur út sextíu laga kassi með mörgum af þekktustu lögum Bjartmars og einnig verður blásið til stórra afmælistónleika í Háskólabíói um næstu helgi, nánar tiltekið laugardagskvöldið 16. júní.

Aðspurður segist Bjartmar sáttur við lífið, ástandið, ferlið og ferilinn fram að þessu. „Maður hefur farið víða og gert margt. Sextíu ár er langur tími. Fyrst og fremst er ég ánægður með það hversu heppinn ég hef verið með fólkið sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Ég get ekki nefnt nöfn því þá yrðu allt of margir út undan, en flestir hafa verið óhemju skemmtilegir. Svo hef ég auðvitað hitt leiðinlegt fólk líka, en það er jafn nauðsynlegt og hitt. Einhvern allra leiðinlegasta mann sem ég hef hitt á ævinni skírði ég Fúlan á móti, en fyrir mér var hann hreint hunang. Fólk má vera eins og það vill og á vissan hátt hef ég gaman af leiðinlegu fólki. Svo er líka til fólk sem öllum finnst rosalega skemmtilegt en ég sé ekkert í," segir tónlistarmaðurinn og vísar til eins af sínum vinsælustu lögum, Sumarliði er fullur, en téðum Sumarliða hefur raunar brugðið fyrir í fleiri textum Bjartmars.

Get aldrei slappað afÞað má með sanni segja að Bjartmar hafi gert margt og farið víða. Á heimili söngvaskáldsins í Vesturbænum segir hann blaðamanni að í þeim bæjarhluta hafi hann lengst af búið síðustu fjörutíu árin og uni sér vel. Hann og eiginkonan, María Helena Haraldsdóttir, eiga annað heimili á Eiðum, en sjálfur ólst Bjartmar upp á Fáskrúðsfirði, fluttist ungur til Vestmannaeyja og hefur einnig búið á Seyðisfirði og í Danmörku, þar sem hann á stóra móðurfjölskyldu og nam meðal annars myndlist í nokkur ár, auk höfuðborgarinnar og fleiri staða. Bjartmar á þrjár dætur og fimm barnabörn.

Sjötugsaldurinn er ekki eini áfanginn sem Bjartmar fagnar um þessar mundir, en í ár eru einnig liðin 35 ár frá því fyrstu höfundarverk hans voru skráð: textar við tvö lög eftir Jóhann Helgason. Raunar hafði Bjartmar verið eftirsóttur og afkastamikill textahöfundur í mörg ár áður en hann lét almennilega að sér kveða á tónlistarsviðinu svo eftir var tekið.

Hvernig stóð á því að þú vaktir athygli sem textahöfundur áður en þú slóst í gegn sem tónlistarmaður?

„Ég hef ort ljóð síðan ég var barn. Þegar ég var lítill var ég afskaplega athafnasamur. Ég var alltaf að semja ljóð, síteiknandi og auðvitað var það á kostnað námsins eins og gengur. Ég er enn svona í dag, er alltaf að mála og hoppa svo yfir í gítarinn og sem lag og aftur í myndlistina og svo sem ég texta, kannski allt á sama klukkutímanum. Svo tromma ég takta á lærin á mér meðan ég horfi á fréttirnar, því ég var trommari áður en ég varð trúbador og spilaði með nokkrum góðum böndum. Ég get aldrei slappað af og gert ekki neitt. Ef ég sinnti ekki listinni svona væri ég í vondum málum. Elsta ljóðið mitt, sem er til skrifað, er frá því ég var þrettán ára og heitir Matvælaráðstefna Sameinuðu þjóðanna:

Við kræsinganna borð

þeir sitja í hóp og þykjast kanna

hvernig öll þeirra orð

metti milljónir manna.

Svo veifa þeir hungruðum börnum með brosi og vinarhóti

en börnin eru of máttfarin

til að veifa á móti.

Ég hef stundum farið með þetta ljóð í gegnum tíðina því það er svo innilega barnalegt og einlægt. Svo tók ég fyrstu vertíðina fimmtán ára gamall og eftir slíka reynslu er maður tilbúinn í allt. Æ síðan hef ég nýtt mína eigin reynslu mikið í textagerð. Ég samdi fullt af textum, meðal annars fyrir Björgvin Gíslason og Þorgeir Ástvaldsson fóstbróður minn, samdi fá lög framan af en heyrði þau alltaf í kollinum. Svo var það árið 1982 að tvö lög eftir mig, Súrmjólk í hádeginu og Háseta vantar á bát, komu út í flutningi Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar, myndlistarmanns og vinar míns og þau vöktu töluverða athygli. Veturinn 1984 hafði ég nýlega kynnst konunni minni og við vorum saman á vertíð í Eyjum. Ég var að vinna í gúanóinu við að setja formalín í loðnuna í helvíti góðum og hlýjum vinnuskúr og þar samdi ég lögin og textana við fyrstu plötuna mína, Ef ég mætti ráða."

Frægðin breytti mér ekkiFyrstu plöturnar þínar komu þér á kortið sem tónlistarmanni með lögum á borð við Kótilettukarlinn, Sumarliða, Fimmtán ára á föstu, Stúdentshúfuna og fleiri, en í raun má segja að stóra sprengingin hafi orðið með plötunni Í fylgd með fullorðnum sem kom út 1987. Þar mátti meðal annarra heyra Týndu kynslóðina, lag sem er löngu orðið sígildur standard, Járnkallinn ásamt Ladda og Sunnudagsmorgun, og á einu augabragði varðst þú einn af allra vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Á sínum tíma þóttust einhverjir merkja að þú hefðir ekki ýkja mikinn áhuga á þessum vinsældum. Er það rétt?

„Ég hef aldrei verið ástfanginn af frægðinni, ekki eitt einasta augnablik, og þegar Í fylgd með fullorðnum kom út átti ég fullt í fangi með að koma fólki í skilning um að ég væri bara venjulegur pabbi úti í bæ. Ég hef aldrei beðið nokkurn mann um að tala við mig, spila lögin mín eða tranað mér sértaklega fram heldur hef ég bara verið með. En eftir á að hyggja fór ég vel með þetta, það verður að segjast eins og er, því nógu mikil voru lætin. Þetta breytti mér ekki neitt. Ekki rassgat."

En breyttust viðhorf annarra gagnvart þér á einhvern hátt?

„Sumir urðu líklega varari um sig, rýndu nánar í textana mína og þóttust sjá þar áróður. Járnkallinn var til dæmis tekinn dálítið fyrir, því hann var saminn um það leyti sem byrja átti að selja allt úr landi. Eins var Súrmjólk í hádeginu dálítið ljótur texti og ég var efins um hann. Stundum eru textarnir mínir það ákveðnir að ég verð að setja þá í IKEA-smelluramma til að þeir passi. Sjálfur hef ég aldrei verið flokkspólitískur heldur fyrst og fremst mannréttindasinni. Ég vil að mennirnir beri virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Ég á ekki til neina óvild og hef ekki skrásett einn einasta mann sem óvin í höfðinu á mér. Mér finnst líka að fólk ætti að athuga vel hvað fer inn á harða diskinn hjá börnum, því það er ekki auðvelt að „dílíta" því sem þar er komið inn. Margt af því sem er í umræðunni er borið fram með þeim hætti að það á ekkert erindi við börn. Haf aðgát í nærveru sálar."

Hef svartan húmorEr þessi samúð með lítilmagnanum ekki einmitt það sem margir hafa hrifist af í tónlist þinni og textum í gegnum árin?

„Ég veit ekkert um það hvort ég er til fyrirmyndar í textagerð og slíku. Ég hef svartan húmor og hef stundum sagt hluti sem ég hef verið lengi að jafna mig á sjálfur, en ég vil alls ekki vera starfandi listamaður í þjóðfélagi án þess að reyna í það minnsta að láta það leiða til einhvers góðs. Sjálfur hef ég ríka réttlætiskennd. Þegar ég var lítill strákur í Eyjum stálum við vinur minn einu sinni kopar frá strák sem var rosalega duglegur að safna fyrir jólasiglingarnar til Hull og fleiri staða. Pabbi minn böstaði okkur, lét okkur skila koparnum til stráksins og á leiðinni heim sagði hann: „Það er hægt að fyrirgefa nánast alla mannlega bresti nema níðingsskap, en ef það vantar í ykkur réttlætiskenndina er ekkert hægt að gera fyrir ykkur." Þetta man ég ennþá."

Engin langtímaplönSíðasta plata Bjartmars, Skrýtin veröld sem hann gerði ásamt Bergrisunum og kom út sumarið 2010, vakti mikla lukku og var Bjartmar meðal annars tilnefndur í fyrsta sinn til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hvert er svo framhaldið?

„Maður gerir engin fjörutíu ára plön þegar maður er sextugur. Ég er að vinna að nýrri plötu, en núna einbeiti ég mér fyrst og fremst að myndlistinni og afmælistónleikunum í Háskólabíói. Nú hangir uppi sýning í Reykjanesbæ og 24. júní verður opnuð önnur sýning í Stykkishólmi. Á afmælistónleikunum 16. júní verður bara rosalegt fjör. Ég byrja rólega, segi kannski nokkrar lygasögur eins og ég kalla þær til að koma fólkinu í gírinn, og svo rokkum við bara með dúndur bandi, bakröddum og gestum. Þetta verða lögin sem allir þekkja og vilja syngja með. Svo ganga allir sælir út í þjóðhátíðarnóttina."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.