Stóll frá afa og ömmu í öndvegi á heimilinu gun@frettabladid.is skrifar 20. nóvember 2012 06:00 sagnfræðingurinn "Sem betur fer áttar fólk sig fljótlega á því að þó að könnunin taki smá tíma er svona upprifjun skemmtileg,” segir dr. Sigurður Gylfi.fréttablaðið/gva „
Mig langar að varpa ljósi á ýmsa þætti í hversdagslífi fólks á síðustu öld, til dæmis hvaða munir voru fólki kærir og eftirminnilegir á uppvaxtarheimilinu. Líka hvort eitthvað af þeim hlutum hafi fylgt fólki inn í samtímann," segir dr. Sigurður Gylfi um rannsókn sína á samspili efnis og tilfinningalífs fólks. Spurningalistar sem Þjóðminjasafnið hefur sent út nýlega undir yfirskriftinni Híbýli, húsbúnaður og hversdagslíf eru eitt af því sem hann notar við þá rannsókn. „Við erum að fá fólk til að lýsa æskuheimili sínu í almennum orðum, jafnvel rissa það upp og færa inn húsgögn og helstu kennileiti í íbúðinni. Spurt er um ýmis heimilisáhöld, til dæmis í eldhúsi, og um salerni. Það hljómar kannski undarlega fyrir nútímamanninn að spá í það hvort rennandi vatn hafi verið í húsinu, en það var ekki alveg borðleggjandi á fyrri hluta 20. aldar. Svo er óskað eftir því í síðasta hlutanum að fólk búi til ímyndaðan dag í lífi fjölskyldunnar á æskuheimilinu þar sem lýst er bæði vinnu og tómstundum, sem sagt hversdagslegum athöfnum fólks." Hóparnir sem fá spurningalistana eru fastir heimildarmenn þjóðháttadeildar sem eru 240 talsins, að sögn Sigurðar Gylfa. „Síðan sendum við 300 manns yfir sjötugu og 300 manns á aldrinum 50-55 ára, sem valdir eru með slembiúrtaki, svona lista. Þótt þetta séu viðmiðunarhóparnir bjóðum við öllum sem vilja, á hvaða aldri sem er, að taka þátt. Fólk getur sótt sér spurningalista inn á heimasíðu Þjóðminjasafnsins," tekur hann fram. Listinn er þrjár síður með spurningum, að sögn Sigurðar Gylfa, sem á von á góðum heimtum. „Sem betur fer áttar fólk sig fljótlega á því að þó að könnunin taki smá tíma er svona upprifjun skemmtileg," segir hann og er sannfærður um að hlutir sem gengið hafi mann fram af manni skipti máli. „Við þekkjum það að stóll frá afa og ömmu er hafður í öndvegi á heimilum í dag því nútímafólk er farið að sækjast eftir gripum úr fortíðinni."
Fréttir Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira