Lífið

Harma hvarf Leiðarljóssins

Halldóra Guðlaugsdóttir og Katrín Eiríksdóttir sitja saman úti í sólinni á harmonikkuballi Grundar og þykir leiðinlegt að Leiðarljós hverfi af skjánum.Fréttablaðið/ernir
Halldóra Guðlaugsdóttir og Katrín Eiríksdóttir sitja saman úti í sólinni á harmonikkuballi Grundar og þykir leiðinlegt að Leiðarljós hverfi af skjánum.Fréttablaðið/ernir
„Spennan í þessu hefur haldið manni við tækið öll þessi ár,“ segir Halldóra Guðlaugsdóttir, sem verður níræð á árinu. Henni þykir miður að sápuóperan Leiðarljós, sem var framleidd í 57 ár, hverfi endanlega af skjáum landsmanna á mánudaginn. Hún og mágkona hennar, Katrín Eiríksdóttir, hafa fylgst spenntar með dramatískum flækjum sápunnar. „Við horfðum oft saman á Leiðarljós,“ segir Halldóra.

Framleiðslu þáttanna var hætt árið 2009 og hefur áhorf þeirra dalað á heimsvísu síðan. „Nú sjá þeir sér ekki hag í að endurnýja samninginn við okkur,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, sem bætir við:„Þetta hlýtur að vera langlífasta þáttaröð allra tíma.“

Leiðarljós hefur verið á dagskrá RÚV frá árinu 1995. Sjónvarpsþáttaröðin hóf fyrst göngu sína árið 1952 á stöðinni CBS en frá árinu 1937 hafði hún verið útvarpsþáttaröð.

„Ég hef ekki horft á þá svo lengi,“ segir Halldóra, sem varð dyggur aðdáandi þáttanna þegar hún hætti vinnu fyrir fjölmörgum árum. Katrín, sem er 87 ára, man vel eftir því hvernig þættirnir hófu að vera í uppáhaldi. „Þeir hafa alltaf verið sýndir um eftirmiðdaginn. Á sama tíma kom ég úr vinnunni og hóf að lesa dagblöðin. Smám saman viku blöðin fyrir Leiðarljósi.“

Báðar dvelja þær á elliheimilinu Grund og voru á harmonikkuballi þegar blaðamann bar að garði. Á Grund á þáttaröðin fjölmarga aðdáendur sem horfa á þáttinn dag hvern í setustofunni.„Við horfum ekki á þáttinn þar heldur erum við báðar með sjónvarp,“ segir Halldóra sem viðurkennir að hún missi úr stöku þátt. „Maður kemst samt alltaf inn í framhaldið.“

Ný sápa hefur göngu sína í haust og eru mágkonurnar ánægðar með að eitthvað fylli í skarðið. „Það er kannski líka fínt að sleppa sjónvarpsáhorfinu yfir sumartímann,“ segir Halldóra en þær fara lofsömum orðum um sápuna The Bold and the Beautiful. „Við horfum á hana nema það komi eitthvað jafn skemmtilegt og Leiðarljós.“hallfridur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.