Ganga 670 km fyrir Blátt áfram 30. júní 2012 12:00 Guðsteinn Halldórsson og Friðjón Hólmbertsson munu ganga 32 km á dag næstu þrjár vikurnar til styrktar baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Fréttablaðið/GVA „
Við ætlum að ganga lengstu leiðina þvert yfir landið,“ segir Friðjón Hólmbertsson en hann mun leggja upp í 670 km göngu ásamt vini sínum, Guðsteini Halldórssyni, á morgun til styrktar samtökunum Blátt áfram en þau berjast gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Gönguleiðina nefna þeir frá Fonti til táar þar sem þeir halda af stað frá vitanum Fonti á Langanesi og ganga að Reykjanesvita á Suðurnesjum. Göngugarparnir munu ganga 32 km að meðaltali hvern dag og áætla að ferðin nái yfir 21 dag en þeir hafa það að takmarki að safna einni milljón að lágmarki. „Við höfum labbað saman síðan árið 1993. Farið út um allt Ísland og til útlanda þar sem við höfum gengið, klifrað og siglt,“ segir Friðjón en þeir Guðsteinn eru meðlimir gönguhópsins Labbakútar sem hefur tekið Ísland með trompi síðustu 20 ár og gengið á flesta staði landsins. „Hann Guðsteinn er líka svolítið klikkaður. Hann hjólaði hringinn einn í fyrra á ellefu dögum fyrir ADHD,“ segir Friðjón og bætir við að þeir hafi farið erfiðustu leiðina á tæplega 6000 metra topp Kilimanjaro fyrir nokkrum árum. Aðspurður hvernig málefnið varð fyrir valinu segir Friðjón: „Við vorum alveg níu mánuði að velja samtök en völdum Blátt áfram þar sem það er aldrei nógu mikið gert í þessum efnum.“ Félagarnir hafa opnað vefsíðuna Blattaframgangan.is og Facebook-síðu undir sama heiti þar sem finna má allar frekari upplýsingar. - hþt
Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Útför Megasar Lífið Fleiri fréttir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Sjá meira