700 myndir borist á RIFF 3. ágúst 2012 10:00 Atli Bollason hjá RIFF segir þá veita nýliðum aðalverðlaunin á hátíðinni, sem sé öfugt við flestar aðrar sams konar hátíðir þar sem þeir séu hafðir í aukahlutverkum. Fréttablaðið/daníel
Fleiri en 700 myndir hafa borist á alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík sem hefst í lok september. „Þegar hafa um 700 myndir verið sendar inn, en í fyrra voru þær um 500. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa þó enn smá tíma en þar sem þeir geta verið svo seinir var umsóknarfrestur fyrir þá framlengdur út þessa viku,“ segir Atli Bollason, kynningarfulltrúi og ritstjóri Reykjavík Film Festival, eða RIFF. RIFF-hátíðin er langstærsta kvikmyndahátíðin hérlendis og verður hún haldin í sjötta skipti dagana 27. september til 7. október næstkomandi. „Það er um tuttugu manna hópur sem situr við að kemba það sem er sent inn og velur úr um eitt hundrað myndir sem komast á hátíðina. Myndirnar eru jafn misjafnar og þær eru margar og af mismiklum gæðum, en það er gaman að sjá hvað leynast alltaf margir gullmolar í hrúgunni,“ segir Atli og bætir við að töluvert meira sé sent inn af erlendum myndum en íslenskum. Stærstu verðlaun hátíðarinnar eru Gyllti lundinn og eru þau veitt fyrir bestu myndina, en aðeins þeir sem eru að senda inn sína fyrstu eða aðra mynd geta hlotið þau. „Aðalverðlaunin hjá okkur fara til nýliða, sem er öfugt við það hvernig þetta er í flestum öðrum keppnum þar sem þeir eru oftast hafðir í aukahlutverki,“ segir Atli. Í fyrra mættu um 30.000 manns á hátíðina og býst Atli ekki við minni aðsókn í ár. „Hátíðin er mjög vinsæl meðal Íslendinga og svo fylgja erlendir framleiðendur myndum sínum oft auk þess sem hellingur af blaðamönnum og bransafólki kemur til landsins til að vera viðstatt,“ segir hann en meðal þeirra sem hafa þegar staðfest komu sína er Marjane Satrapi, leikstýra og höfundur Persepolis- trs
Mest lesið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Útför Megasar Lífið Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Sam Smith trúlofað Lífið Fleiri fréttir Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Sjá meira