Draggkeppni á glæsilegasta sviði landsins 3. ágúst 2012 13:00 Georg segir hvern sem er geta sótt um að komast í Draggkeppni Íslands. Í fyrra fóru þau Jennifer Hudson Obama og Möllerinn með sigur af hólmi. „
Það er varla hægt að gera dagskránna veigameiri en síðustu ár því hún er alltaf svo flott. En þetta verður dúndur glamúr og skemmtun í glæsilegasta sal landsins,“ segir listamaðurinn Georg Erlingsson Merritt um Draggkeppni Íslands sem haldin verður í fimmtánda sinn næsta miðvikudag. Sjálfur tók Georg þátt í keppninni árið 1998 og hefur séð um hana síðan. „Það er ótrúlegt hversu mikið keppnin hefur stækkað og breyst á þessum tíma. Fyrstu árin var hún haldin á litlum búllum en á 10 ára afmælinu fluttum við hana í Loftkastalann og við það varð algjör sprenging,“ segir Georg sem fór þaðan með keppnina í Íslensku óperuna og fylgdi þeim svo yfir í Hörpu í fyrra. Hann segir hugarfar fólks hafa breyst mikið með tímanum og að fólk sé nú orðið meðvitaðara um dragg sem listform. Níu manns taka þátt í keppninni í ár, fimm stelpur og fjórir strákar. „Það getur hver sem er sótt um að vera með, gay eða straight og á hvaða aldri sem er. Fimmtug hóra gæti þess vegna sótt um,“ segir Georg og hlær. Mikil áhersla er lögð á persónuleikasköpun á sviðinu og mikilvægt að atriði og útlit fari vel saman. „Fólk verður að geta farið út í öfgar en samt verið sannfærandi. Auk þess þarf það að leysa ýmsar þrautir og allan tímann að passa sig að detta ekki úr karakter,“ segir Georg. Keppnin fer fram í Eldborgarsal Hörpu 8.ágúst og er miðasala hafin. Leynd hvílir yfir því hverjir skipa dómnefndina en leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir verður kynnir kvöldsins. „Hún er svo skemmtileg, það er aldrei að vita hvað henni dettur í hug að gera af sér svo fólk verður bara að koma og sjá,“ segir Georg kíminn. - trs
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira