Stelpurnar spenntar fyrir drulluboltanum 2. ágúst 2012 16:00 Fjögur lið voru skráð til leiks í fyrsta mýrarboltanum árið 2004 en í ár eru þau orðin 83. Gríðarleg fjölgun er á kvennaliðum í ár. Mynd/einkaeign „
Það er metskráning á mótið í ár og gríðarleg fjölgun á kvennaliðum,“ segir Jón Páll Hreinsson, gjaldkeri Mýrarboltafélags Íslands. Evrópumeistaramótið í mýrarbolta verður haldið á Ísafirði um helgina og eru þegar 83 lið skráð til leiks. Í fyrra tóku fimmtíu lið þátt í mótinu en voru aðeins fjögur þegar það var fyrst haldið árið 2004. Mýrarboltinn er hálfgerður drullufótbolti þar sem lið keppast við að koma bolta í net andstæðingsins á velli sem er eitt drullusvað. „Þetta er líkamlega mjög erfitt og allt gerist rosalega hægt inni á vellinum, sem er líklega ástæða þess að ekki hefur verið mikið um meiðsl,“ segir Jón Páll, en í yfir eitt þúsund leikjum hefur einn maður snúið sig á hné og annar brákað á sér tá og er sjúkrasagan þar með upptalin. Ekki er aðeins keppt í boltaleik á mótinu því metnaðarfull búningakeppni er háð samhliða auk þess sem baráttan um drullugasta keppandann er mjög vinsæl. „Ætli drulluverðlaunin séu ekki eftirsóttust, enda þvottavél í boði fyrir sigurvegarann,“ segir Jón Páll. Fjörubrenna og flugeldasýning verða á laugardagskvöldið og fyrir lokahófið á sunnudag verður öllum stöðum bæjarins lokað og fólki safnað á útiball. Jón Páll segir Ísafjarðarbæ tilbúinn í þá miklu aukningu fólks sem má reikna með um helgina. „Við bjóðum alla velkomna, Ísfirðinga, Vestfirðinga, Íslendinga og aðra.“ segir hann, spenntur fyrir helginni.- trs
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira