Stjörnum prýddur hópur tæklar Íslendingasögurnar 2. ágúst 2012 16:00 Jóhann Haukur leikur Egil Skallagrímsson og Ingvar E leikur Þráinn Sigfússon í nýjum þáttum Vesturports þar sem Íslendingasögurnar verða tæklaðar. Rakel Garðarsdóttir segir verkefnið viðamikið og kalla mikil ferðalög.
Vesturport vinnur að þáttaröðinni Ferðalok sem fjallar um Íslendingasögurnar og áhrif þeirra. Rakel Garðarsdóttir framleiðandi segir verkefnið viðamikið.„Við munum fara erlendis og taka viðtöl við leikstjóra, leikara, rithöfunda og allskyns stórstjörnur sem hafa sótt innblástur í Íslendingasögurnar,“ segir hún án þess að gefa upp um hvaða stórstjörnur ræðir. „Flestir hafa verið til í þetta sem er skemmtilegt því þá fattar maður hvað sögurnar eru stórt dæmi. Við verðum samt líka með innlendar stjörnur og fræðimenn.” Í þáttunum er leikið sér að því að spyrja hvort atburðirnir séu skáldskapur eða sannleikur og eru þeir bæði í formi leikins efnis og heimilda. Þættirnir verða á dagskrá RÚV í lok desember og víðsvegar um heiminn í framhaldinu. „Allavega í Skandinavíu og Rússlandi. Svo eigum við eftir að þreifa betur fyrir okkur og fara á þýskan og franskan markað og sem víðast. Vonandi verður líka hægt að nota þetta til kennslu í skólum til að viðhalda áhuga fólks á Íslendingasögunum,“ segir Rakel sem vonar að verkefnið heppnist vel svo þáttaröðin sem telur sex þætti geti staðist tímans tönn. Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, hóf að leggja drög að handritinu fyrir tíu árum og bar undir Rakel fyrir tæpu ári sem ákvað að hefja framleiðslu. Vala segir að Brennu-Njálssaga, Gíslasaga Súrssonar, Laxdæla og Egilssaga verðir teknar fyrir. „Í heimildahlutanum fer ég til dæmis á Þjóðminjasafn og skoða gripi sem fundust á stöðunum og þær tóftir sem ennþá sitja í jörðinni og kuml sem hafa fundist,“ segir hún. Björn Hlynur Haraldsson skrifaði handrit þáttanna ásamt Völu og hefur nú þegar leikstýrt heimildahlutanum. Hann þurfti þó að halda til Hollywood og leika í þáttunum The Borgias svo Ragnar Hansson stýrir nú stjörnum prýddum leikarahópi. „Jóhann Haukur leikur Egil Skallagrímsson, Ingvar E. Sig leikur Þráinn Sigfússon, Atli Rafn leikur Starkað undan Þríhyrningi og Bjartur Guðmundsson er Gunnar á Hlíðarenda sem er alveg eins og stokkinn upp úr Njálu svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Rakel og bætir við að Gísli Súrsson sé leikinn af Stefáni Halli. Auði djúpúðgu leikur Vigdís Másdóttir, Auði Vésteinsdóttur, konu Gísla, leikur Tinna Lind Gunnarsdóttir og Vignir Rafn er Kolskeggur bróðir Gunnars. hallfridur@frettabladid.is
Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Sjá meira