Feðgin með sex daga tónlistarhátíð 1. ágúst 2012 13:00 Feðginin Valgeir og Vigdís Vala fagna hverju tækifæri sem þau fá til að spila saman. Fréttablaðið/stefán "
Hún fer sínar eigin leiðir og þarf lítið á leiðbeiningum að halda því þetta liggur svo fallega fyrir henni," segir tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjónsson um 19 ára gamla dóttur sína, Vigdísi Völu Valgeirsdóttur. Vigdís Vala og faðir hennar spila saman á sex daga tónlistarhátíð í NemaForum við Lækjartorg yfir verslunarmannahelgina. Feðginin komu fyrst fram saman á afmælistónleikum Valgeirs í Hörpu síðasta vetur og hafa þau stigið saman á svið nokkrum sinnum eftir það. "Ég breyttist í ryþma-leikara og bakraddasöngvara á Bræðslunni í Borgarfirði um daginn þar sem hún spilaði tvö af eigin lögum," segir Valgeir. Vigdís Vala er rétt að hefja tónlistarferilinn en áhugi hennar kviknaði út frá leiðindum meðan hún lá rúmföst í lengri tíma vegna veikinda. "Ég var orðin dauðleið á öllum litlu hobbýunum sem ég var búin að finna mér að gera svo ég bað pabba um að koma með rafmagnsbassann. Þaðan var svo stutt í gítarinn og ég fór að glamra og kenndi mér á hann sjálf," segir Vigdís og hlær, en hún semur, syngur og spilar aðeins á gítar. Vigdís Vala stefnir á háskólanám í sálfræði í haust en hyggst þó halda áfram í tónlistinni samhliða náminu. "Ég var að stofna hljómsveitina Líparít ásamt sex öðrum og við erum að semja á fullu núna," segir hún spennt en hljómsveitin spilar meðal annars í Iðnó á Menningarnótt. Hátíðin í NemaForum hefst í kvöld og verða tónleikar klukkan 20 öll kvöld til og með 6. ágúst. "Við verðum með blandað efni og miðum dagskrána við salinn hverju sinni," segir Valgeir. - trs
Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Útför Megasar Lífið Fleiri fréttir Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Sjá meira