Hrollvekja í norrænni keppni 1. ágúst 2012 16:00 Erlingur kynnir handrit að hrollvekju í fullri lengd í Nordic Talents Pitch ásamt Baldvin, samstarfsfélaga sínum til margra ára. Fréttablaðið/Vilhelm „
Okkur fannst vanta íslenska hrollvekju og ákváðum að gera þessa mjög íslenska með því að sækja í þjóðsögur og náttúru," segir Erlingur Óttar Thoroddsen en handrit hans að hrollvekju í fullri lengd tekur þátt í Nordic Talents Pitch keppninni í Kaupmannahöfn dagana 5. til 7. september. Baldvin Kári Sveinbjörnsson er hugmyndasmiður handritsins ásamt Erlingi og framleiðir kvikmyndina. Hrollvekjan hefur fengið tvo handritsstyrki frá Kvikmyndasjóði Íslands og er lagt upp með að hefja tökur næsta sumar. „Að komast inn í keppnina er gríðarlegur heiður fyrir okkur og mun vonandi hjálpa myndinni enn meira," segir hann. Keppnin er haldin árlega af Nordisk Film & TV Fund fyrir nýútskrifaða norræna kvikmyndaskólanema þar sem þeir kynna handrit sín fyrir dómnefnd kvikmyndagerðarmanna og hitta marga lykilmenn kvikmyndabransans á Norðurlöndunum. Leikstjórinn Ragnar Bragason situr í dómnefnd og segir Erlingur það vera ákveðinn létti að hafa dómara sem skilur íslenskt þema verksins. Handritið ber titilinn Hulin og segir frá manni sem heldur upp á hálendi í leit að týndri systur sinni. „Þar hittir hann fyrir hóp af fólki í dularfullum erindagjörðum. Á endanum uppgötva þau að þau eru þarna af svipaðri ástæðu sem tengist huldukonu sem þjóðsögur segja að búi á svæðinu," segir Erlingur. Stefna þeir á að taka upp á Laugaveginum, gönguleiðinni milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Þeir hafa báðir stundað meistaranám í leikstjórn við Columbia-háskóla í New York en Baldvin útskrifaðist í vor og Erlingur stefnir á að klára næsta vor. Þeir eiga langt samstarf að baki. „Við gerðum fyrstu stuttmyndina okkar saman í Garðaskóla þegar við vorum 15 ára og enduðum báðir í Columbia. Þetta er sem sagt náttúrulegt framhald af okkar samstarfi," segir hann. -hþt
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira