Það eru fleiri geðveikir en alkar 27. júlí 2012 13:00 Njálu Óttar Guðmundsson flytur áhugaverðan fyrirlestur um geðveiki í Íslendingasögunum, þá helst í Brennu-Njálssögu, á Edrúhátíðinni um verslunarmannahelgina. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er nú bara grín því það er alltaf talað um að alkar séu geðveikir og ég held því fram að það megi finna öll þessi vandamál í Íslendingasögunum,“ segir Óttar Guðmundsson, geðlæknir, um titil fyrirlesturs síns, Það eru fleiri geðveikir en alkar, sem hann flytur á Edrúhátíð SÁÁ að Laugalandi í Holtum um verslunarmannahelgina. Með fyrirlestrinum útskýrir hann geðgreiningar sínar á söguhetjum Íslendingasagnanna, með áherslu á Brennu-Njálssögu því hátíðin fer fram á Njáluslóðum. Greinir hann geðsjúkdóma og fer yfir samband Hallgerðar Langbrókar við Gunnar frá Hlíðarenda og Bergþóru Skarphéðinsdóttur. „Þær eru báðar persónuleikaraskaðar konur og afleiðingar verða miklar deilur milli þeirra. Svo tala ég um vonlaust samband Hallgerðar og Gunnars sem einkennist af því að hún er persónuleikaröskuð og hann mjög óöruggur, sjálfhverfur og kvíðinn,“ segir Óttar. Hann telur stoðir hjónabandsins þó fyrst og fremst veikar vegna mikillar hrifningar Gunnars af Njáli. „Margt bendir til þess að þeir hafi átt í samkynhneigðu ástarsambandi.“ Edrúhátíðin er ætluð allri fjölskyldunni og verður dagskráin æði fjölbreytt. Þar á meðal er barnadagskrá, 12 spora fundir, hugleiðslur, dansleikur og uppskeruhátíð tónleikaraðarinnar Kaffi, kökur og rokk & ról með tónlistarmönnum á borð við Mannakorn, Kiriyama Family, Prins Póló og Legend. Óttar ræðir geðgreiningar sínar klukkan tvö á laugardeginum. - hþt
Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Fleiri fréttir Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sjá meira