Lífið

Kex-menn fegra bakgarð sinn

Pétur Marteinsson og félagar hans í Kexi hosteli eru byrjaðir á að skapa grænt svæði við Hverfisgötuna.
Pétur Marteinsson og félagar hans í Kexi hosteli eru byrjaðir á að skapa grænt svæði við Hverfisgötuna. fréttablaðið/stefán
„Okkur fannst þessi rassendi á miðbænum, það er að segja Hlemmur og Barónsstígur, þurfa á smá andlitslyftingu að halda. Við ræddum fyrst við húseigendur í kring og þeir tóku vel í hugmyndina og þá bárum við þetta undir Reykjavíkurborg og hún aðstoðar okkur við verkefnið," segir Pétur Marteinsson, eigandi og framkvæmdastjóri Kexi hosteli, sem stendur við Skúlagötu 28. Pétur og meðeigendur hans hafa ráðist í framkvæmdir á svæðinu á milli Kexins og verslunarinnar 10-11 og ætla að skapa þar grænt svæði.

„Við tókum við húsnæðinu í nóvember árið 2010 og lögðum þá áherslu á að við fengjum smá skika af lóðinni fyrir ofan okkur til að geta haft meiri áhrif á ásýnd Kexins og nú viljum við fara að gera fallegt í bakgarðinum okkar," útskýrir Pétur.

Á svæðinu var áður malarbílastæði og sem geymdi nokkur bílhræ og var að því lítil prýði fyrir íbúana í kring. Þegar hefur verið ráðist í framkvæmdir á svæðinu og vonar Pétur að það verði orðið nothæft í lok mánaðarins.

„Við erum byrjaðir að móta svæðið og fáum til þess aðstoð frá Veraldarvinum sem búa á móti okkur á Hverfisgötunni. Á árum áður stóð hér viti og á grunni Skúlagötu 28 var saltfisksplan, það væri gaman að geta gert einhvers konar minnisvarða um gamla tíma þarna." Einnig eru uppi hugmyndir um að reisa gróðurhús á skikanum og rækta þar grænmeti fyrir veitingastað Kexins.

Inntur eftir því hvort garðurinn fái að standa óhreyfður um óákveðinn tíma segir Pétur það ekki öruggt því að reitnum fylgi byggingaréttur sem hann og meðeigendur hans hafa enga stjórn á.

„Ég segi bara er á meðan er. Á meðan reiturinn stendur ónýttur getum við í það minnsta haft það huggulegt þarna." - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.