Grillmarkaðurinn með besta borgarann 20. júlí 2012 14:00 Blaðamennirnir Byron Wilkes og Haukur S. Magnússon gæða sér á hádegisborgara á Grillmarkaðnum, sem gerir besta borgarann samkvæmt matsnefnd Reykjavík Grapevine. Fréttablaðið/Ernir „
Við erum alveg geigvænlega hrifin af borginni og okkar hlutverk er meðal annars að benda lesendum á hluti sem þeir ættu að prófa,“ segir Haukur S. Magnússon, annar ritstjóri tímaritsins Reykjavík Grapevine, sem gaf út sitt fjórða árlega „Best í Reykjavík“ tölublað á dögunum. Þar hljóta sjötíu staðir og fyrirbæri lof fyrir að vera bestir á sínu sviði. Í fyrsta sinn frá upphafi listans varð Hamborgarabúlla Tómasar ekki hlutskörpust í flokknum „Besti borgarinn“ en hádegisborgari Grillmarkaðarins þótti bera höfuð og herðar yfir aðra borgara bæjarins. „Þetta er rosalegur borgari. Ég hef ferðast víða og er mikill áhugamaður um hamborgara en ég held að þessi á Grillmarkaðnum skáki jafnvel góðum amerískum borgurum, frá sjálfu landi hamborgaranna,“ segir hann smjattandi. Snaps varð fyrir valinu sem „Besti veitingastaðurinn, fjandakornið!“ og Faktorý sem „Besti allra handa barinn“. Sundhöllin bættist í hóp stofnana Reykjavíkurborgar samkvæmt blaðinu. Það eru staðir sem hafa sannað ágæti sitt og eru Bæjarins bestu, Kaffibarinn og Ísbúð Vesturbæjar meðal annars á þeim lista. Haukur segir aðstandendur ánægða með útkomuna. „Listinn er hvergi nærri óskeikull, en endurspeglar hvað stór hópur fólks kann að meta við Reykjavíkurborg og lífið þar.“ Sigurvegararnir voru valdir af tveimur mannmörgum umræðuhópum, út frá ýmsum ábendingum og könnun á Netinu. „Við fengum okkur bara bjór og ræddum við fólk sem hefur reynslu af því að borða úti og sækja þessa staði,“ segir hann.- hþt
Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Fleiri fréttir Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Sjá meira